Ægir - 01.09.1926, Page 23
ÆGIR
187
ir og starfsamir. Þeir munu flestir eiga ætt-
ir að rekja til sveitamanna austur, að öðru-
hvoru kynferði.
A thugagrein.
Af 60 ára reynslu er aðgætt, að fíöð hafi
orðið mest um og eptir veturnætur, veður
mest um jól fram yfir miðjan vetur af land-
og hafsuðri til útsuðurs, en vestan- og út-
norðanáttir hafa verið skæðastar sjófarend-
um í Höfnum.
Klettur er framan Hafnaberg, laus við
land, má fara milli hans og þess, stendur
optast upp úr um flóð, og því ekki sérlega
hættulegur. Víða eru hoðar með landi, en
ekki sérleg rif eða útgrynni. Röstin fyrir
Reykjanesi liggur til vesturs frá nesinu til
Eldeyjar; hálfa viku sjávar frá því er svo
mikið misdýpi, að á skipslengd er 14 og
lika 40 faðma djúp, og er það hraunhrygg-
ur þverhníptur að norðan, en flatur suður
af. Viku sjávar frá landi verður sandalda
um 50 faðma djúp, en botnast ekki þá
norður eða suður af ber; sandalda þessi
breikkar því meira sem fram eptir dregur
og ætla menn hún nái framt að Eldey.
Skammt frá henni, hér um bil 80 faðma, er
40 faðma djúp landsmegin, en grynnra að
vestan. Opt er straumur svo mikill í röst-
inni, þó veður sé gott, að ekki gengur á
fallið, þótt siglt sé og róið af mesta kappi.
Aðfall er þar venjulega meira en útfall;
stundum ber til, að þar [er] ekki skiplæg-
ur sjór, þó annarsstaðar sé ládeyða. Vest-
an- og sunnanáttir eru þar beztar, þá hæg-
ar eru, en austanáttir hættulegastar, því að
sækja er á einn Iandsodda í austur, en haf
á allar síður, en straumar opt óviðráðan-
legir. Ekki hefur þar skip farizt svo menn
viti8), en erfitt er að sækja þangað; mörg
hefur þaðan máltíð fengizt; það er um 4
vikna sjóarlengd þangað frá Kirkjuvogi.
Þetta er þá sú upplýsing, er er get í stuttu
máli meðdeilt yður, prestur minn góður, í
því áður umtalaða og bið eg yður auðmjúk-
lega vel að virða, en skyldi þar þurfa
nokkru við að bæta, vildi eg að því leyti
geta sýnt viljann, en hið auðmjúklega leið-
réttingar á missmíðinni og yfirsjónum.“
Erlendar fiskveiðar.
Veiðar Canadamanna í júlí 1926.
Veiði af sjávarfiskum í Canada (aust-
ur- og vesturströnd) var alls í júlí 134.-
432.100 pund, virt á 3.994.376 dollara, á
inóts við 102.976.200 pund, virt á 3.334.341
dollara í sama mánuði í fyrra.
Atlantshafsströndin.
Þar varð veiðin alls af þorski, ýsu, kol-
múla og lýr í júlímánuði 47.618.700 pund,
móts við 47.199.800 pund í júlí 1925.
Það veiddist minna af þorski og kolmúla
en nálega helmingi meira af ýsu og lýr,
en í júlímánuði 1925.
Síldveiðin í júlí, varð 12.105.900 pund
á móts við 6.868.800 pund í sama mánuði í
fyrra.
Kyrrahafsströndin.
Al' heilagfiski öfluðust 3.632.200 pund í
júlí, móts við 3.536.100 pund í sama mánuði
í fyrra.
Laxveiðin varð í júlí 3.632.200 pund inóts
við 3.536.100 pund í júlí 1925.
Einn fiskimaður druknaði við Kyrra-
hafsströndina.
8) 1>. e. í Reykjanesröst.