Ægir - 01.11.1926, Qupperneq 14
226
ÆGIR
Mótorar í róðrabáta.
Mótorbátar hafa mjög rutt sér til rúms
síðan um aldamót og margar tilraunir hafa
verið gerðar til þess að ganga úr skugga um,
hver tegund þeirra eða stærð væri heppileg-
ust og hafa tilraunir þær stundum orðið
dýrar, en svo er nú komið sunnanlands, að
12—15 smálesta bátar þykja hinir bestu. Á
öðrum stöðum landsins þykja stórir mót-
orbátar hentugir (útilegubátar og rekneta-
bátar) og 3—6 smálesta bátar sumstaðar,
alt eftir staðháttum.
. Nú eru menn farnir að setja litla mótora
i fjögra og sexmannaför; þykir það gefast
vel og eru fiskimenn óðum að kaupa litla
mótora, bæði gamla og nýja.
Árni Gíslason fiskimatsmaður á ísafirði
mun með þeim fyrstu, ef ekki fyrstur, sem
lét mótor í róðrarskip sitt um aldamótin.
Síðan hafa vélar tekið miklum framförum og
eru nú miklu léttari og hentugri i báta, en
þær voru þá, en þrátt fyrir það verður að
hafa alla varúð er um opna mótorbáta
ræðir, sem hafðir eru til veiða og fara langt,
og þar sem enginn virðist finna hvöt hjá
sér til að leiðbeina mönnum með þennan
nýja rekstur í fiskiveiðum, verður reynt að
gera það hér, einkum þar sem sumir spá,
að slys geti af þessu leitt, bátar séu ekki
hæfir til að hafa mótora sumir hverjir o. fl.
íslenskir róðrabátar eru ekki smíðaðir
nema fvrir árar og segl og þarf því á ýms-
an veg að styrkja þá báta, sem mótorar eru
látnir í; of seint og of dýrt að athuga það
atriði, þegar skoðuuarmanni list ekki á frá-
gang og bannar að róa á ótraustum bát.
Einn af bestu bátasmiðum hér hefir góð-
fúslega látið í té reglur þær, sem hann
siníðar nú eftir báta þá, sem ætlast er til
að hafi mótora og eru þær þessar.
Eitt af því sem nauðsynlega þarf að setja
í þessa opnu báta, sem hafa mótora eru loft-
kassar, sem hafa að minsta kosti það mik-
ið burðarmagn, að þeir lyfti mótornum.
Heppilegast mundi vera að hafa kassana af-
jiyljaða undir þóftum. —
Flestir af jjeim bátum hér, sem mótorar
hafa þegar verið settir í, eru of veikbygðir,
böridin eru furubönd, söguð úr beinum
plönkum og súðin fest í þau með reksaum,
í stað bess að hafa eikarbönd, helst úr sjálf-
bognu efni og rónegld í hverja súð; einnig
ætti í stað þess að festa kjalsúðunum með
reksaum i kjölinn — að vera kjalbekkur,
sem boltaður væri niður i kjöl, sem kjal-
súðirnar væru rónegldar í; með því móti
getur skipið flotið, j)ó kjölurinn laskist.
Innra stefni ætti líka að vera í hverjum bát,
það gerir bátinn miklu sterkari, þar sem
seyming verður tvöföld i hálsunum, í stað-
inn fyrir að vera fest í stefnið með reksaum
í bláendana; vita það allir, sem nokkuð hafa
verið á opnum bátum, að ekki þarf mikinn
árekstur til jjess að stefni laskist.
Nauðsynlegt er að vel sé bygt undir mót-
orinn; jjyrfti að vera strangt eftirlit
með því, að mótorarnir séu ekki aðeins fest-
ir á tvo járnboga, sem síðan eru boltaðir út
í siðurnar, eins og sést hefir hér með bíl-
mótora. sem settir 'hafa verið í báta.
Undir mótornum jjurfa að vera 3 þver-
stvkki, sem nái hæfilega langt upp í sið-
urnar, vel boltuð ofan í kjölinn og jjar ofan
á 2 langstykki, sem boltast i þverstykkin.
Það má ekki eiga sér stað, að mótorar hafi
svo íltið að sitja á, að þeir geti skekst af
jjeim örsökum, og eyðilagt bæði öxla og
stefnislegur; i þessum bátrim eru öxlar svo
grannir að þeir þola lítið slit.
í flestuin jjessum bátum munu vera raf-
kveykjuvélar. Er þá nauðsynlegt, að vel sé
gengið frá magnetunni; ættu menn helst
að hafa vatnsheldan poka fóðraðan með
vatti, til að láta yfir hana, og verja hana
raka. Húsið yfir mótornum þarf að vera ör-