Ægir - 01.07.1929, Síða 4
138
ÆG.IR
að ekki þarf orðum að að eyða. Þegar
„Ægir“ var lagstur, skamt frá Geirs-
hólma, voru veitingar fram bornar.
Undir borðum var sungið hið snjalla
kvæði Þorsteins Gislasonar, sem birt er
hjer í blaðinu, en því næst bauð dóms-
málaráðherra gestina velkomna, lýsti í
fáum, ljósum dráttum baráttu íslend-
inga fyrir því, að taka landhelgisgæsl-
una i sínar hendur, og mintist þeirrar
miklu þýðingar, sem það hefði út á við,
fyrir sjálfstæðsbaráttu þjóðarinnar, að
íslendingar ættu sjálfir og rækju
strandgæsluskipin, sem sigldu undir ís-
lenskum fána, mönnuð íslendingum.
Ráðherrann fór siðan nokkrum orðum
um varðskipið nýja, hve á allan hátt
var til þess vandað, svo að það upp-
fyllir allar þær kröfur, sem hægt er að
gera til slíkra skipa nú á dögum. Skip-
ið kvað hann liafa orðið dýrt, upp
undir eina miljón króna; að visu myndi
skipið hafa orðið um 100 þús. kr. ódýr-
ara, ef það hefði ekki verið smiðað
sem mótorskip, en einmitt fyrir það
mundi sparast mörg þúsund krónur á
ári á rekstri þess. Ráðherrann þakkaði
loks öllum þeim, sem lagt höfðu hönd
að því að ísland hefir eignast þetta vand-
aða varðskip. Var síðan drukkin skál
„Ægis“. Undir borðum mæltu og nokk-
ur orð Magnús Torfason sýslum., forseti
Sameinaðs Alþingis, og Karl Einarsson
fyrv. sýslumaður. Að snæðingi loknum
hleypti skipstjóri af tveimur línubyss-
um, sem „Ægir“ er útbúinn með, ef á
hann er kallað til björgunarstarfsemi.
Gestirnir skoðuðu skipið hátt og lágt,
og luku menn lofsorði á það einum
rómi, hve útbúnaður allur virtist full-
kominn og skipið fagurt og vistlegt,
ekki síst vistarverur skipshafnar, sem
eru óvenjulega bjartar og rúmgóðar.
Allmargir gestanna voru fluttir út í
Geirshólma, og klifu upp á Hólmann.
Að þvi loknu var haldið til Reykjavík-
ur aftur og komið þangað um mið-
nætti. Var förin að öllu leyti hin á-
nægjulegasta.
„Ægir“ er fallegt skip; er hann 170
feta langur, 29% fet á breidd, dýptin
17% og vjelin hefur 1300 hestaöfl.
Skipið er hitað með rafmagni, hefur
fullkomna miðunarstöð og hraðamæli
af nýjustu gerð, sem er hið mesta þing.
Auk þessa eru á skipnu tvær 75 cm.
fallbyssur, tveir öflugir Ijóskastarar,
dráttaráhöld og dælur. Ættu þau björg-
unaráhöld að koma að góðum notum,
þar sem staðhættir leyfa, að varðskip-
ið geti nálgast svo strandað skip, að
þeim verði komið við.
Varðskipsljóð.
Nú er framfara tíð,
yfir fjörðum og hlíð
leikur fjörblær, sem drunganum bægir.
Aftur Ingólfs um jörð
halda Æsirnir vörð.
Hér er Þór, hér er Óðinn og Ægir.
Skjótt vex þjóðinni þor
er hið vaknandi vor
fær til viðreisnar kraftana gefna.
Fylgi hamingjan heið,
greiði gæfan þeim leið,
sem til gróðurlands óskanna stefna.
Blátt og blikandi haf
okkur alfaðir gaf
með þeim eilifu framtíðar vonum.
Viði, voldugi sjór,
fagur, sterkur og stór,
vertu aflgjafi tsalands sonum.
Þ. G.