Ægir - 01.07.1929, Qupperneq 12
146
ÆGIR
felli, hvort pækilsmettaður eða á annan
hátt skemdur fiskur, sé útflutningshæf-
ur eða ekki, og höfum orðið aS gjöra
þaS án sérstakrar auglýsingar aS hendi.
En hún bannar t. d. alveg ótvírætt aS
gefa matsvottorð með pældlsöltuðum
steinbit eða karfa til Portugal eða
Miðjarðarhafsins, og til þessara landa
er bannað að senda fisk án matvott-
orðs. Ég er þó viss um að væri hægt
að finna markað fyrir ýmsar ódýrari
fisktegundir á þann liátt, að senda þær
pækilsaltaðar í tunnum, þá væri það vel
þess virði, að auglýsingin væri numin
úr gildi, eða að minsta kosti endur-
skoðuð.
Þetta er nú orðið langt mál, Ásgrím-
ur minn, og nú vil ég að lokum að eins
bæta þessu við:
Ég ræð þér til að prófa kassasöltun
samkvæmt fyrirsögn minni, og ef þú
skyldir finna hvöt hjá þér til þess að
skrifa eitthvað um hana á eftir, þá er
ég reiðubúinn til þess að ræða málið
frekar við þig.
En ef þér sýnist réttara að eyða orku
þinni og skapi til þess að skrifa um
þetta á svipaðan hátt og áður, og án
þess að hafa kynt þér nokkuð, það, sem
þú ert að skrifa um, þá svara ég því
ekki aftur.
Og vertu svo blessaður.
Sveinn Árnason.
ATH.
Þrátt fyrir það þó ofanrituð grein
hr. Sveins Árnasonar fari sumstaðar
nokkuð utan hjá efninu þá þykir
Ægi samt ekki ástæða til að neita
henni upptöku, þar sem grein sú, í 3.
tbl. Ægis, sem bún er svar við, var all-
óvægin og ekki alstaðar nægilega rök-
studd. Það er mjög lofsvert og i sam-
ræmi við störf yíirfiskimatsmannanna,
að þeir geri tilraunir með nýjar verk-
unaraðferðir, og gefi almenningi þær
upplýsingar, sem þeir álíta að megi
koma að notum, enda á það að vera eitt
af störfum fiskimatsmanna að fræða
fiskframleiðendur um meðferð á fiski,
frá því hann kemur úr sjónum og þang-
að til hann er orðinn hæf markaðsvara
og hefur því miður verið gert of lítið
að því atriði hingað til. Þó að yfirmats-
mennirnir séu ekki sammála í einstök-
um atriðum, er ekki ástæða fyrir þá
af þeim ástæðum að hlaupa i hárið
hver á öðrum, heldur er fylsta ástæða
að rannsaka það atriði, sem um greinir
með áframhaldandi tilraunum áður en
því er slegið föstu, að það sé ónothæft.
Ritstjórinn.
Yfirlit yfir útgerðina í apríl 1929.
í veiðistöðvum talið með sól frá Vest-
mannaeyjum að Stykkishólmi voru 43
togarar og á þeim 1346 menn, 23 línu-
gufuskip, á þeim 406 menn, vélbátar 12
smálestir og stærri, 119, á þeim 1187
menn, vélbátar minni en 12 smálestir
70, á þeim 560 menn, opnir vélbátar
146, á þeim 897 menn, róðrarbátar 15,
á þeim 80 menn. Samtals skip og
bátar kl6 með W6 mönnum.
Talið frá Patreksfirði að Sléttuhreppi,
2 togarar, á þeim 64 menn, vélbátar, 12
smálestir og stærri 28, á þeim 326
menn, vélbátar minni en 12 smálestir,
52, á þeim 346 menn, opnir vélbátar
43, á þeim 166 menn, róðrabátar 27, á
þeim 108 menn. Samtals skip og bátar
á þessu svæði, 152 með 1010 mönnum.
Svæðið Siglufjörður til Húsavíkur, —
2 vélbátar, 12 smálestir og stærri, á
þeim 16 menn, 41 vélbátur minni en
12 smálestir, á þeim 164 menn, 11 opn-
ir vélbátar, á þeim 23 menn. Samtals
bátar 5h með 203 mönnum.