Ægir - 01.07.1929, Síða 14
148
ÆGIR
liggja, skulu safna greinilegum skýrsl-
um um öll lendingar- og leiðarmerki
fyrir verstöðvar innan lireppsins og fyr-
ir þá staði, sem opnir bátar leita lend-
ingar á, þegar brim eða veður gerir
þeim óldeift að lenda i verstöð sinni.
Verstöðvar, sem áður liefir verið
stundað útræði frá, en nú eru niður
lagðar eða útgerð ekki stunduð frá
lengur, skulu taldar með skýrslum þess-
um, að svo miklu leyti sem lendingar
eru þar nothæfar sem neyðarlendingar.
2. gr.
Skýrslur þessar skulu sendar vita-
málastjóra svo fljótt sem auðið er, og
í síðasta lagi 6 mánuðum eftir að lög
þessi öðlast gildi. Lendingar- og leiðar-
merkjum má ekki breyta frá því, sem
auglýst hefir verið, nema með sam-
þykki vitamálastjóra.
3. gr.
Vitamálastjóri semur greinilega skrá
vfir öll lendingar- og leiðarmerki eftir
skýrslum þeim, sem honum berast.
Skrá þessi skal prentuð í sambandi við
„Skrá yfir vita og sjómerki á lslandi“
eða gefin út sérstök eins oft og ástæða
er til, en viðbætir árlega, ef einbver
breyting verður á árinu.
4. gr.
Sé um verstöð að ræða, þar sem eig-
andi eða ábúandi tekur uppsáturs- eða
viðlegugjöld af bátum þeim, er þaðan
stunda róðra, ber þeim, er uppsáturs-
gjöldin taka, að annast uppsetningu og
alt viðhald lendingar- og leiðarmerkja.
Sé ekki tekið uppsáturs- eða viðlegu-
gjald, kostar hreppssjóður uppsetningu
og viðhald nauðsynlegra merkja.
5. gr.
Nú er verstöð lögð niður eða hætt að
stunda útræði þaðan, og ber þá hrepps-
sjóði að annast alt viðhald merkjanna,
að svo miklu leyti sem lendingarnar
eru notbæfar sem neyðarlendingar.
Sama gildir um verstöðvar eða lend-
ingar, sem áður eru lagðar niður og þar
sem merkin eru týnd eða liafa hrunið;
þar ber hreppsnefnd í samráði við vita-
málastjóra að sjá um uppsetningu
nýrra inerkja á kostnað hreppsjóðs, að
svo miklu leyti sem ástæða er til, að
áliti vitamálastjóra.
6. gr.
Nú er eitthvað af leiðarmerkjunum
hús eða húsgafl eða því um líkt, og er
þá bannað að rífa það, breyta eða færa
úr stað nema þvi aðeins, að annað
greinilegt merki sé sett í staðinn i sam-
ráði við vitamálastjóra.
7. gr.
Bannað er að byggja hús eða mann-
virki, er skyggi á leiðarmerki frá sjón-
um yfir þann boga sjóndeildarhrings-
ins, sem því er ætlað að sýna lending-
una eða innsiglinguna, og hæfilega
langt til beggja handa, og getur lirepps-
nefnd látið rífa húsið eða mannvirkið á
kostnað eiganda þess, ef brotið er á
móti þessu.
Ákvæði þessarar greinar ná þó ekki
til eigenda eða umráðamanna ver-
stöðva, sem annast viðhald merkjanna
samkv. 4 gr., enda setji þeir upp önnur
merki ekki ógreinilegri en þau, er fyrir
voru, i samráði við vitamálastjóra.
8. gr.
Vitamálastjóri hefir eftirlit með, að
merkjum þeim, sem hér um getur, sé
rétt lýst og þeim sé lialdið við. Nú van-
rækir sá, er viðhaldsskylduna liefir, að
halda merki í viðunandi standi, og er