Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1929, Síða 18

Ægir - 01.07.1929, Síða 18
152 ÆGIR ast fyrir fiskinn, enda oft af fjárhags- legum ástæðum nauðbeygðir til að selja á þeim tíma, að altaf er hætta á, að verðið fari óþarflega lágt niður. Útflutningur frá Noregi og fiskbirgðir 1929 tíirgðir 1. janúar 1929 11,320,000 kg. Saltað á árinu ........... 48,000,000 — 59,320,000 kg. Útflutt frá 1. jan. til 6. júli 1929 ................ 28,859,188 kg. Birgðir 8. júni 1929 . . 30,460,812 1928 Birgðir 1. janúar 1928 8,000,000 kg. Saltað á árinu ........... 35,000,000 — 43,000,000 kg. Útflutt frá 1. jan til 6. júlí 1928 ................ 20,141,218 kg. Birgðir 8. júli 1928 . . 22,858,682 —kg. Samkvæmt þessu hafa Norðmenn flutt út i ár sem svarar nærri 9 þús. smálestum meira en í fyrra, miðað við fullverkaðan fisk. Aftur á móti hefir útflutningur oklc- ar ekki numið meiru frá 1. jan. til 1. júli i ár en 26,709,380 kg. miðað við fullverkaðan fisk á móti 30,078,106 á sama tíma í fyrra, en næstu mánuði er útlit fyrir töluverðan útflutning, enda hefir verðið hækkað töluvert síðara hluta júlímánaðar og mun nú vera borgað sem svarar 115—118 kr. fyrir skpd. til útskipunar i ágúst og septem- ber og 120 fyrir afski])un í október. K. B. Símskeyti frá fiskifulltrúaa á Spáni dags. 16. júlí 1929. Birgðir áætlaðar 1000 smálestir, sala greið, hámarksverð 85 pts. lækkandi Newfoundlandi. Skýrsla dags. 17. júlí. Viðvikjandi markaðsástandinu er þetta að segja. Barcelona. Eftirspurnin hefur lík og venjulega á þessum tíma árs, þó ef til vill í frekar daufara lagi, þangað til nú síðustu dagana að hún hefur aftur aukist. Færeyjafiskur Mauritzens í Leith, sem i skeyti mínu dags 23. f. m. var getið um að menn óttuðust að sendur yrði hingað i umboðssölu, var sem betur fer seldur til Bilbao. Búast menn hér því ekki lengur við neinum slíkum umboðssendingum hingað. í gær lækkaði matvælanefndin há- marks-heildsöluverð sumra fiskinnflytj- endanna lijer niður í 85 peseta, er mið- ist við það, að cifverðið hafi verið 35 shillings. Þar sem nú hingað hefur ver- ið seldur fiskur lægra verði en þetta, má búast við að matvælanefndin lækki hámarksverðið eitthvað meir. Hækkar hún það svo aftur þegar dýrari fiskur kemur. Þetta heildsölu-hámarksverð nefndarinnar fer algjörlega eftir cif- söluverðinu á hverjum tíma, eins og jeg hefi skýrt frá áður. Jafnframt því að lækka hámarksverð heildsalanna, lækk- aði nefndin líka í gær hámarksverð smásalanna. Mætir sú Iækkun mikilli mótspyrnu af þeirra hálfu og ætla þeir að senda nefnd til stjórnarinnar i Mad- rid til þess að reyna að fá því breytt. Hefi jeg ekkert- símað um þetta, þar sem óvíst er, hvað úr verður, eða hvaða álirif kann að hafa á markaðinn.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.