Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1929, Blaðsíða 23

Ægir - 01.07.1929, Blaðsíða 23
ÆQIR 157 Síldveiðin 1929. 13. júlí 1929: Vestfjarðaumdæmi 30.666 hl. bræðslusíld Siglufjarðarumdæmi 18.786 — — Akureyrarumdæmi 4.200 — — Samtals 13. júli 1929 53.652 hl. bræðslusíld — 14. — 1928 47,550 — — — 16. — 1927 81.117 — — 20. júlí 1929: Vestfjarðaumdæmi 77.033 hl. bræðslusíld Siglufjarðarumdæmi 56.099 — — Akureyrarumdæmi 42.750 — — Samtals 20. júlí 1929 175.882 hl. bræðslusíld — 21. — 1928 99.349 — — — 23. — 1927 204.759 — — 27. júlí 1929: Vestfjarðarumdæmi 111.449 hl. bræðslusíld Siglufjarðarumdæmi 76.089 — — Akureyrarumdæmi 68.250 — — Samtals 27. júlí 1929 255.788 lil. bræðslusíld — 28. — 1928 207.753 — — — 30. — 1927 251.604 — Skrumauglýsing. Árið 1912 hafði ég unnið i Viðey í 5 ár og ekkert sumarfri fengið, en um vorið það ár samdist svo um, að ég yrði vikutíma í Varmadal í Mosfellssveit, einhvern tíma um sumarið. Eg hafði þá verið giftur í 4 ár og var búsettur í eyjunni. Vildi þá svo til, að ég las aug- lýsingu einhvern dag i maímánuði, sem mér leist vel á, einkum voru það 80 ónefndu hlutir, sem freistuðu mín, því ég bjóst við, að það væru einhver nauðsynleg búsáhöld, sem ætið koma sér vel. Las ég auglýsinguna vandlega og skrifað síðan pöntun, en auglýsingin hljóðaði þannig: „1 mjög vandað gull-double vasaúr (ankergangur), gengur i 36 tima, á- byrgst að gangi rétt í 4 ár. 1 príma peningaveski úr leðri. 1 gull-double úr- festi. Vandaðir hnappar i skyrtu og mancliettur, með patentlás. 1 hringur, slifsisnæla, kvennbrjóstnál — síðasta gerð, 1 perluhálsband, skriffæri til að hafa i vasa (prima), 1 mjög vandaður vasaspegill i hylki og 80 hlutir nauð-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.