Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1932, Síða 3

Ægir - 01.04.1932, Síða 3
ÆGIR MÁNAÐARIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 25. árg. Reykjavik. — Apríl 1932. Stjórn Fiskifélags íslands. Á nýaf- stöðnu Fiskiþingi voru kosnir i stjórn Fiskifélagsins: Forseti Kristján Berqsson, kosinn með 11 atkv. Meðstjórnendur : Geir Sigurðsson, kos- inn með llatkv., Dr. Bjarni Sœmundsson, kosinn með 9 atkv. Varaforseti Ólafur B. Björnsson með 6 atkv. Varameðstjórnendur: Bankastjóri Jón Ölajsson með 10 atkv. Skipstjóri Por- steinn Porsteinsson með 8 atkv. Starfsmenn Fiskifélagsins eru: Skrifstofustjóri: Sveinbjörn Egilson, Skrifstofumaður: Arnór Guðmundsson, Fiskifræðingur: Árni Friðriksson og Vélfræðiráðunautur: Þorsteinn Loftsson. Nokkrar athugasemdir um beitusíld. AHir þeir sem nokkuð þekkja lil fiski- veiða með linu, munu vera sammála um, að beitusíld þurfi að vera góð °g feit, þegar hún er tekin til frystingar, °g vel með hana farið altaf frá því og Þar til hún er komin í sjóinn, sem agn á önglinum. Fg hef beðið þess í langan tíma með óþrej'ju að sjá einhvern skrífa eitthvað um þennan þarfa en því miður mjög dýra útgjaldalið þeirra skipa og manna, sem línuveiði stunda. En allt og sumt Nr. 4 sem ég hef séð um þetta eru tölur um beitukostnað einstaka skips, og nefnd hefur verið »Sívaxandi beilueyðsla« og þetta hvorutveggja getað skilist þannig, að fiskimönnum einum væri um að kenna, en ég mun hér leitast við að sýna að svo er ekki. Þó ég strax játi það, að miklum mun stærra er skorið á öngul hvern hér við Faxaflóa, heldur en gert var t. d. á Vestfjörðum áður en línu- veiði fór að verða jafnalmenn hér syðra og hún nú hefur verið í nokkur ár. Eg tel upp á að sá vöxtur beitueyðsl- unnar, sem mætti segja að væri samkv. kröfum formannanna, nemi allt að 3/s. Þ. e. ef 100 lóðir (10.000 önglar) hefðu áður verið beiltar með 100 kg., þá myndi nú þykja ofsmátt skorið ef sama lína væri beitt með minna en 160 kg. af sild, þetta hvorttveggja miðað við það, að síld- in væri klakalitil og óhrufluð á roði. Menn munu spyrja, hvernig formenn krefjist þess, að beitt sé svona stórt. Svar- ið yrði líklega viða, að þeim þætti það fiskilegra, einkum á þeim svæðum, sem ekki þekkist smærri beituskurður en þetta, og eftir því sem línan er digrari og óþjálli, er hættara við að flókni með mjög smárri beitu. En hvernig er svo sildin, sem sjó- mönnum er fengin í hendur til að beita með allan þennan sæg af önglum, sér- staklega hér við Faxaflóa ogVestmanna- eyjar, þegar líður á vetur hvern. Hún er mjög oft og viða í því ástandi, að hún á ekki nafnið skilið heldur ætti

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.