Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1932, Page 22

Ægir - 01.04.1932, Page 22
108 ÆGIR Mannshöndin ein var orkulindin. — Vél- gengið smurið í brennivíni. — Allt var framleitt með brennivinskrafti — fisk- þvottur, fiskburður, þangfjörur, beitu- fjara o. s. frv., en ekki svo að skilja að fólkið væri fullt við vinnuna, síður en svo, kaffið og brennivínið veilt óspart, en þó með bæfilegu millibili, til þess að halda fólkinu heilu og hreifu við vinnuna, smurðu í brennivíni! Brennivínið var þá allt í senn, bensinið, smurningsolían og koppafeitin, til þess að smyrja með mannvélina, svo hún gengi með fullum kraftil Og stórbændurnir spöruðu held- ur ekki að birgja sig upp með smurn- inginn, þetta frá 5—7 tn. (600—840 pt.) tók hver af þessum áðurnefndu bænd- um árlega af brennivíninu og 20—40 pt. af rommi, og allt var þetta veilt, en ekkert selt. En það má furðu gegna að enginn af þessum bændum neyttu vins sjálfir, þó þeir væru alla daga að tappa af tunnunum. Það var eins og þeir fyndu sig hátt yfir það hafna að neyta sjálfir vins, þó þeir veittu það óspart öðrum. Hins vegar var Ketill föðurafi minn að marki vínhneigður, en sagður var hann hinn mesti mannvinur, bjargvættur hins bágstadda, öllum til hjálpar, en engum til meins. Eldfjörugur var hann og af- brigða glímumaður, átti hann oft íbrös- um við Bessastaðastúdentana á meðan hann bjó á Skógtjörn á Álftanesi. Var sagt að Vigdís fyrri kona hans (dóttir Jóns dbrm. sterka í Stóruvogum) hefði oft þurft að bæta föt hans eftir heim- boðin að Bessastöðum. Sagt var mér í æsku, af mér eldri mönnum, að ég væri lifandi eftirmynd afa míns að vallarsýn, lífsgleði og fjöri og svo tók ég líka að erfðum eftir afa, gömlu brennivíns-kar- öfluna haus og með henni ílöngun afa míns að innihaldinu úr þeirri gömlu! enda líka snemma á það vaninn af vinnu- mönnunum, sjómönnum og fleirum. En þó nú svo væri sem að framan er sagt, að brennivínsstraumarnir rynnu sem lækur i leysingu inn i hreppinn, svo að um 16 pottar féllu á nef hvers karls og konu, ungt og gamalt, fyrir utan allt það vín, sem vinnumennirnir og sjó- mennirnir tóku, aðallega fyrir hátíðar, þá var þó ekki hægt að sjá áberandi drykkjuskap á mönnum hversdagslega. Helzt var það er sjómenn fóru í Kefla- vik að sækja rúg í kökurnar sínar að þeir komu hreiflr heim að kveldi með kökuefnið. En er fór að líða að pásk- unum fór heldur að draga úr hófdrykkju- hættinum. Man ég að aldrei var svo seint komið af sjó á miðvikudaginn fyrir skirdag, að ekki færu fleiri eða færri af hverju skipi að sækja á páskapelann til Keflavíkur. Var mörgum ekki svefnsamt á skírdagsnótt, en þó var það samt sjálf- ur skýrdagur, sem setti met allra annara hátíðisdaga í Hafnahreppi i þá daga, í algleymisfyllirii, áflogum, kjaftshöggum og kinnhestum, glóðaraugum og gaul- rifnum ílíkum. Er mér enn þá minnis- stæður skírdagsmorgun 1874, er ég á- samt fleiri strákum komum að einni sjóbúðinni, sem var einstætt hús úr timbri, og nefnt var Guðnahús; bjuggu i þeirri sjóbúð hásetar Gunnars Halldórs- sonar, sem áður er nefndur. Löngu áð- ur en að við vorum komnir að húsinu, heyrðum við hávaðann, brakið og brest- ina, svo þilin, veggirnir og gaflar, gengu i bylgjum út og inn. Var nú meiri en minni hugur í okkur strákum að kom- ast sem næst kösinni, en ægilegt var að heyra og sjá allt sem þar fór fram inn- an veggja, því darna höfðu safnast sam- an mill, 30 og 40 risar sitt frá hverju heimili, allir blindfullir og allir í einni áflogabendu. Ivvað við í húsinu er kjafts- höggin dundu, en orðbragðinu, öskrinu

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.