Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1932, Blaðsíða 24

Ægir - 01.04.1932, Blaðsíða 24
110 ÆGIR skonnrok og drukku brennivín, og þá hélt hver sjómaður við sina þjónustu, og þá fikkaðist. en nú er öllu þessu hætt og nú fæst heldur ekki branda úr sjó — og þarna hefurðu það!« Grindavík hefur nú síðustu áratugi verið almesta fiskiver allra Suðurnesja og sett »met« í aflabrögðum á opnum bátum frá, því ísland byggðisf, siðast- liðna vetrarvertíð. Metið setti Guðjón Gfslason í Vík með 50 þúsund af þorskí auk smærri fisks. Er það óefað mestur atli sem fengist hefur á opið skip á einni vetrarverlíð. Væri þvi mjög fróðlegt fram- tíðarinnar vegna, ef að Guðjón vildi gefa opinbera skýrslu yfir hvað mikinn skyr- hákarl, skonnrok og brennivín hann brúkaði yfir vertíðina! og svo síðast en ekki sízt, hvað margar þjónustumeyjar hann og hásetar hans mzsbrúkuðu í þjón- ustu sína, við sokkaplaggaþvott og fleira! En þess er ég futlviss, að ef hann Þ. gamli væri nú risinn upp úr gröf sinni, þá myndi hann renna sínum greindar- legu augum til Grindavíkur og segja : »að mikinn horfinn meyjarblóma megi hann hafa á melinu sínu hann Guðjón garmur!« En sjálfan mig verð ég að telja fiski- fræðingnum okkar fremri, þar sem ég hef orðið fyrstur manna til þess að vekja athygli islenzkra formanna á þessu ör- yggi gegn aflalegsinu! Mér hefur láðst að geta þess, en þess er þó vert að geta, að á meðan allir þessir miklu sjósóknarar og aflamenn sem ég áður hef nefnt, voru hér uppi og stunduðu sjó, kom það aldrei fyrir einn einasta helgan dag, að þeir réru til fiskjar. í þau 40 ár, sem Vilhjálmur Há- konarson var formaður, var það að eins einu sinni að hann fór á sjá á sunnu- degi, en það var til þess að lóðsa danskt kaupfar inn á Þórshöfn. Hinsvegar gættu þessir formenn þess stranglega að ekki félli úr einn einasti dagur alla föstuna, svo að ekki væri lesinn húslesturinn og sungnir passíusálmarnir og varð hver maður að hlýða lestri og söng með heil- agri andankt! Hið sama mátti segja þeg- ar messudagar voru, að þá urðu allir sjómenn að fara i kirkju og hlýða helg- um tíðum. og var Kirkjuvogskiikja þá svo troðfull að oft var sæta vant í kirkj- unni á vetrarvertíðunum. Mjög sjaldan kom það fyrir að drukk- inn maður sæist í kirkjunni, það var þá helzt ef messað var á skírdag, að ein- hver slæðingur var af ölvuðum mönn- um við messugerðina, en þeir voru þá, þó ofstopamenn væru, prúðir og stilltir, sem ódrukknir væru. Annars gættu þess- ir formenn þess að láta ekki háseta sína fara í kirkju ef þeir voru mikið drukknir. En ekkert er án undantekn- inga, og allir viðburðir hafa sínar or- sakir. — Einu sinni brá þó ofurlítið út af hinum venjulegu helgisiðum við messu- gerð í Kirkjuvogskirkju, og af því að mér er enn þann dag í dag, sú helgiat- höfn t fersku minni, þó nú séu liðin 50 ár síðan, þá get ég ekki skilið svo við skrif þessi, að ég ekki greini frá því helzta, sem fram fór við þessa messugerð. Þegar Vilhjálmur dbrm, Hákonarson dó 1871, tók við skipi og formennsku eftir hann. fyrir ekkju hans Þói uni Brynj- ólfsdóttur prest að Útskálum — bróður- sonur Vilhjálms, Bjarni Guðnason, þá um tvítugsaldur, en nú blint gamal- menni á níræðisaldri hjá frú Hildi mág- konu minni í Kotvofíi. Er óhætt að telja Bjarna einn með mestu sjósóknurum og aílamönnum, sem verið hafa í Hafna- hreppi. Hafði Bjarni því alltaf valið lið háseta, voru margir af hásetum hans hin mestu tröll að vexti, og orðlagðir víking- ar að dugnaði, bæði við árina — og kútinn!

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.