Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1932, Síða 7

Ægir - 01.07.1932, Síða 7
ÆGIR 161 laginu, ritað fróðlegar greinár í Ægi og má ritið vænta góðrar aðstoðar hans framvegis. Þeir sem stunda sjó, ættu að muna það, að Ægir er þeirra tímarit, en þótt lítið sjáist úr þeirri átt á prenti til þessa i þvi, þá hefur þó oft verið leitað til þeirra og hafa ýmsir gefið réttar skýr- ingar á tvíræðum sögusögnum sem taka átti ( ritið. Væri óskandi að starfandi sjómenn færðu ritinu endrum og sinn- um greinarkorn; það lífgar upp. Annan í páskum s. 1. hittumst við Matthías hér í Reykjavík og létum taka þá mynd af okkur, sem hér birtist. Bað hann mig þá að bera lesendum Ægis, frá þeim tíma að hann var ritstjóri, kæra kveðju sina og þakkir fyrir aðstoð og velvild allra. Sömu þakkir færi ég, í fyrsta lagi öllum forselum og stjórnum Fiskifélagsins í nálega 19 ár og þakka þeim velvild þeirra mér sýnda og að þeir hafa á einn og annan hátt greitt veg minn. í öðru lagi þakka ég öllum, er styrkt hafa Ægi með ritgerðum °g ýmsu, sem á einn og annan hátt hefur gert mér það fært, að halda mér við það eitt, sem ritið var stofnað til, sjóinn. Að síðustu þakka ég öllum þeim, sem i ritstjóratíð minni, hafa skrifað mér uppörfunarbréf og skor- að á mig að halda áfram að skrifa um hryggi á sjónum. Þótt enginn lesi slíkt ná orðið, einkum þegar margt er endurtekið, þá verður Ægir þó vottur þess er fram líða stundir, að til voru Þeir, sem létu sig þau mál skipta, hvort sem það verður reiknað okkur lof eða óþarfa hjal á komandi árum. Reykjavík, 10. júlí 1932. Sveinbjörn Egilsson. „Ægir“. — Stutt yfirlit. Aflaskýrslur. Þegar ég tók við ritstjórn Ægis, var mér það Ijóst, að ég yrði að birta afla- skýrslur eins og áður hafði verið gert, en þar mætti ég ýmsum örðugleikum. Það voru einkum menn í veiðstöðvum fyrir austan fjall og suður með sjó, sem sendu skýrslur, nokkrar komu frá öðr- um landsfjórðungum. Einkum voru þær greinilegar, sem að austan komu; má þakka það áhuga þeirra Guðmundar ís- leifssonar á Eyrarbakka og Jóns Stur- laugssonar á Stokkseyri, sem frá byrjun sýndu Fiskifélaginu hina mestu velvild. Erindreki Matthías Ólafsson, sem þá var einn og ferðaðist kringum landið, gaf ítarlegar skýrslur um ferðir sínar, en þar sem hann vegna fjárskorts félagsins, varð að fara fljótt yfir, var ekki við því að búast, að hann gæti gefið skýrslur um aflabrögð á hinum mörgu verstöðv- um, en hann hvatti menn hvarvetna þar þar sem hann gat haldið fundi og stofn- að deildir, að hefjast handa og senda skrifstofu Fiskifélagsins i Reykjavík, afla- skýrslur, eins oft og ástæður leyfðu. Auk þessa eru ýmsar fróðlegar ritgerðir eftir hann í Ægi og skýrslur frá erindreka- starfi hans erlendis. Árið 1915 komu nokkrar aflaskýrslur utan af landi og úr Reykjavik náðist skútu- og togaraafli, sem var ónákvæmur mjög og þá talinn í skippundum. Yfirleitt voru menn ófús- ir á að gefa Fiskifélagsskrifstofunni upp eitt og annað, sem þurfti að fá upplýs- ingar um, og var það einkum af því, að menn skildu ekki starfið og vissu ekki hvers vegna verið var að spyrja. Kom þetta fram við mig sjálfan. Þegar ég réðist hjá félaginu, hafði ég 100 kr. á mánuði fyrir skrifstofustörf og

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.