Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1932, Blaðsíða 10

Ægir - 01.07.1932, Blaðsíða 10
164 ÆGÍR til þessa, enda engar bókaðar tillögur um það, heldur að eins umræður manna á meðal. Nú er Ægi 25 ára, og síðasta hefti þess árs verður í sama formi og hið fyrsta hefti hans var, þegar hr. Matthías Þórðarson byrjaði útgáfuna. Má kalla það vel sloppið á þeim breytinganna tímum, sem yfir land þetta hefur gengið, síðan árið 1905. Eg get ekki endað þelta litla yfirlit, án þess að minnast á þann starfsmann félagsins, sem mestan veg og vanda hef- ur haft við söfnun aflaskýrslna og að koma öllum ruglingi, óvissu og vand- ræðum sem voru, í reglubundið form og hið vandaðasta. Maður þessi er Arnór Guðmundsson, sem starfað hefur hjá félaginu síðan árið 1925, og er það honum mest að þakka, að Ægir flytur mánaðarlega nákvæmar og glögg- ar skýrslur um afla á öllu landinu, sem munu meðal hinna nákvæmustu, sem nokkur þjóð er veiðar hefur með hönd- um, lætur frá sér fara. Sveinbjörn Egilson. Nauðsynleg fyrirtæki. Ný dráttarbraut í Rvlk. Mikið af efni er nú komið til hinnar fyrirhuguðu dráttarbrautar í Reykjavík. — Er óskandi að hún yrði fullger hið bráðasta. Vöntun á góðri dráttarbraut hefur haft ýmislegt illt í för með sér á undanförnum árum, þótt eigi sé minnst á allt það fé, sem farið er út úr landinu fyrir viðgerðir á skipum, bæði innlend- um og útlendum, sem ekki hefur verið auðið að draga á þurt land. Bryggja í Keflavík. Herra Óskar Halldórsson hefur tekist það á hendur, sem mörgum hefur óað við. Það er hvorki meira né minna en að koma hafskipabryggju eða bryggju fyrir í Keflavík. Er sagt, að verkið vinn- ist vel og munu flestir óska þess, að Óskari heppnist að fullgera og leiða til lykta þetta fyrirtæki sitt. Það eru mörg ár síðan farið var að ræða um hafskipabryggju í Keflavik, og eftir þvi sem aflabrögð urðu meiri á Suðurnesjum, eftir því óx þörfin, að hún kæmi þar. — Á Fiskiþingum hefur mál þelta verið rætt, kostnaðaráætlun og ýmsar mælingar gerðar, en allt hefur slaðið við sama. Salt hefur oftast orðið dýrara og flutningur á sjávarafurðum til kaupenda sömuleiðis, allt vegna bryggju- leysis. Bryggjur þær, sem Óskar lætur gera, verða tvær og er önnur að mestu full- ger, þegar þelta er ritað (8. júlí). — Ætlast hann til að við hvora megi af- greiða togara, en vöruskip, sem lengri eru, liggi við báðar, þannig, að losa eða ferma megi úr 2—3 lúkum. Landssmiðjan hefur að mestu verk þetta með höndum og leggur til kafara, sem gengur frá neðri endum stálbjálka á hafsbotni, sem eru aðal-máttarstoðir bryggjunnar. Auk þess vinna þar nokkrir smiðir úr Hafnarfirði. Síldveiðin. Laugardagskvöld 16. júlí var búið að salta 798 hálftunnur og setja 5371 hl. í bræðslu.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.