Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1932, Page 13

Ægir - 01.07.1932, Page 13
ÆGIR 167 Við umræður um þetta mál í Stór- þinginu gat verzlunarmálaráðherrann þess, að hann enn þá ætlaði að reyna að fá alla aðilja til að samþykkja þelta mál af fúsum vilja, áður en lögunu^n verði beitt. Skýrsla frá fiskifulltrúanum á Spáni. Barcelona, 24 júní 1932. Þar eð mér hefur skilist á óljósum hegnum að heiman, að verið sé að koma á einhvers konar samtökum milli út- gerðarmanna og úlflytjenda, til að halda uppi fiskverðinu og festa það, leyfi ég uiér hérmeð að gefa yfirlit yfir hvernig markaðurinn í Spáni og Portúgal stend- ui' af sér, eftir því sem ég hef kynnst honum á minni stuttu dvöl hér. Vil ég reyna að draga upp aðallín- urnar fyrir hvern markað, í þeirri von, að útflytjendur heima fái skýrara yfirlit ýfir hvað gera þurfi og hægt sé að gera, en hægt er að fá af markaðstilkynning- um ræðismannanna og mánaðarskýrsl- um fiskifulltrúans. Hér á Spáni má skipta markaðinum • fernt, eftir þvi hvernig ibúarnir vilja fiskinn verkaðann, og við hvaða fisk hann hetur að keppa á hvorum stað: 1. Kata- 'óníu-markaðurinn, sem nær yfir Barce- lona og Tarragona, og svæðin þar i grend. -• Bilbao-markaðurinn, sem nær yfir Norður-Spán. 3. Galiciu-markaðurinn, Sem nær yfir norðvesturhorn skagans, °8 4. Suður-Spánar-markaðurinn, sem nær yfir allan Suður-Spán, nema Kata- lóníu. r>l Barcelona hefur sallfisks-innflutn- ingurinn numið um 14.000 smálestum undanfarin ár. í fyrra féll hann þó niður í rúmar 13.000 smálestir. Um miðjan þennan mánuð hafði fluzt hingað tæpar 6.000 smálestir, en birgðir samt minnkað um 1.500 smálestir frá áramótum, svo neyzlan hefur verið um 7.500 smálestir, og þvi fullt svo mikil sem undanfarin ár og löluvert meiri en í fyrra, því þá hafði innflutningurinn í miðjum júní ekki numið nema 4.500 smálestum, en neyzlan alls 5.800 smálestum. Pegar fyrsti fiskurinn frá vertíð yfir- standandi árs kom hingað, var hann seldur fyrir 112 pes. pakkinn í upphafi, enda líkaði fiskurinn stórvel og var lal- inn einhver bezti fiskur sem hingað hafði komið. Um mánaðamólin kom svo fær- eyskur fiskur til Trueba y Pardo. Var hann og skínandi fallegur, en var hoð- inn fyrir 100—105 peseta úrvalið, og vanalegur fyrsta flokks fiskur fyrir 96— 98 pes. Pessi úrvalsfiskur var heima- fenginn afli við Færeyjar, mjög vand- virknislega verkaður og fallegur. Pólti hann þó ekki standa framar fyrsta fisk- inum, sem Kveldúllur hafði sent. 1 þessum mánuði hefur hvert skipið komið á fætur öðru og hefur verðið fallið með komu hvers þeirra. í dag (20. júní) er fiskur kominn ofan i rúm- lega 90 peseta pakkinn, frá 92—98. Iíaupendur fullyrða að þeir hafi keypt fyrsta flokks fisk fyrir 86 peseta, en hvort það er satt þori ég ekki að full- yrða. Hitt er þó víst, að menn trúa því hér og telja ekkert að marka lágmarks- verð það, sem Islendingar hafa sett, og búast því við frekara verðfalli. Innflytjendur í Barcelona eru átta tals- ins. Hefur innflutningsmagn skipzt svo milli þeirra sl. 3 ár, sem segir á næslu bls. Pó að tölur þær, sem eftirfarandi tafla sýnir, séu að sjálfsögðu ekki fullkomnar, tel ég, að ekki muni skakka miklu.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.