Ægir - 01.07.1932, Síða 15
ÆGIR
169
að sjá um innkaup sín í Færeyjum og
kaupir mikið af fiski sínum þaðan.
Hafði það áður mann til að sjá um inn-
kaup sín á íslandi, en hætti við það
fyrir nokkrum árum og er talið að við-
skiptin við Island séu heldur minnkandi.
Eftir því sem þessi stóru firmu hafa
aukið viðskipti sín, hefur dregið úr við-
skiptum smærri firmanna við ísland,
svo þau verzla þvi nær eingöngu við
Færeyjar og kaupa af Hawes y Cia
(Espana) Ltda. Selur það firma einnig
nokkuð af íslenzkum fiski að sumrinu.
Eins og menn vita er það eingöngu
islenzkur og færeyskur fiskur, sem keppir
á Barcelona-markaðinum. í skýrslum
Verzlunarráðsins er raunar talið að inn-
flutningur á brezkum fiski hafi numið
allt að 200 smálestum sum árin, en þar
niun átt við færeyskan fisk aðallega.
Eru þær skýrslur ekki nákvæmar, en
niunu þó telja hlutföllin milli islenzks
fisks og annara landa nokkurn veginn
rétt. Telja þær að innflutningurinn til
Barcelona og Tarragona hafi uumið sem
hér segir á árunum 1924-1929: Smál. alls Paraffráísl.
Árið 1924 nam innfl. 9.392 8 295
— 1925 — — 10.542 9634
— 1926 — — 11.104 10 425
— 1927 — — 11.939 11 050
— 1928 — — 18.728 18.240
— 1929 — - 11 680 11.326
I fyrra er innflutningurinn, samkvæmt
skeytum ræðismannsins hér, 13.013 smál.,
°g er færeyskur fiskur 1.251 smál., en
íslenzkur 11.762 smálestir. En fram til
15. þ. m. hefur innflutningurinn numið
5.913 smál., og hafa Færeyingar flutt inn
985 smál., en Islendingar 4 928 smálestir.
Ryður færeyski fiskurinn sér hraut í
Barcelona með hverjum mánuði upp á
siðkastið, og líkar vel. Pó munu Fær-
eyingar ekki eiga mikið af fiski handa
Barcelona og af úrvalsfiski þeim, sem
nefndur hefur verið, er talið að ekki
séu til nema 3.500 pakkar. En ef þessir
3,500 pakkar eru boðnir fram smám
saman, geta þeir auðvitað skapað nokk-
urn óróa um verð og óánægju með ís-
lenzku verkunina.
Ef Islendingar hugsuðu sér að koma
einhverju skipulagi á markaðinn hér,
mun því ekki stafa eins mikil hætta af
samkeppninni við Færeyinga, eins og
milli islenzkra útgerðarmanna, því tvö
brezk firmu hafa innkaupa umboðsmenn
í Reykjavík og gætu þeir að sjálfsögðu
ekki haft áhrif á söluverð hér syðra.
Eg vil geta þess að sumir innflytjenda
liafa minnst á það við mig, hvort ríkis-
stjórnin íslenzka myndi ekki geta komið
á einhverju skipulagi á markaðinn hér,
er kæmi í veg fyrir verðlækkun þá, sem
verið hefur undanfarið. Sjá þeir sem er,
að ágóði þeirra hlýtur að hverfa alger-
lega, ef fiskverðið fer jafnt og þétt lækk-
andi, þvi þó ágóði kunni að vera á því,
sem fyrst selst af hverjum farmi, ézt
hann upp á því sem síðar selst.
Á Bilbao-markaðinum er færeyski fisk-
urinn einnig okkar hættulegasti keppi-
nautur, enda er aðalmarkaður hans í
Bilbao og hefur verið frá fornu fari.
Innflutningurinn til Bilbao hefur hrakað
með ári hverju síðustu fimm árin, og
hefur minnkað um þriðja hluta, á þessu
tímabili, en innflutningurinn á íslenzkum
fiski hefur minnkað um helming.
Hefur innflutningurinn skipst sem á
næstu bls. segir milli helztu landanna
sem þar keppa.
í Bilbao eru töluvert fleiri innflutn-
ingsfirmu en í Barcelona. Hafa hvert af
stóru úlflutnings firmunum sína föslu
viðskiptamenn, en fleiri en einn, og hafa
ekki jafn náið samband við þá. Selja
bæði brezku firmun, sem áður er getið,