Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1932, Page 17

Ægir - 01.07.1932, Page 17
ÆGIR 171 göngu við norskan fisk í Galiciu, en norskir útflytjendur hafa samtök um að bjóða ekki fiskinn niður hver fyrir öðr- um, mundi hægt að verðfesta það lítið, sem við sendum þangað, með samtökum útflytjenda, ef ekki væru bresku firmun. Á Suður-Spánar-markaðinum eru boðn- ar fram þrjár tegundir af fiski: Shore- fiskur, egta labri og íslenzkur labri. Auk þess hefir verið selt þangað nokkuð af frönskum lavé og íslenzkum pressufiski. Shore-fiskurinn frá Newfoundlandi og islenzki fiskurinn keppa ekki, af þvi að shore-fiskurinn er tvöfalt dýrari en sá íslenzki, og kemur þar því engin sam- keppni til greina. Aftur á móti er nokk- ur samkeppni milli islenzka og egta labrans, en þó ekki mikil, því kaup- menn vilja heldur verzla með egta labr- ann vegna þess, að hann er sendur í umboðssölu, svo þeir hafa ekki sömu áhættu af honum og íslenzka labranum, og betri greiðsluskilmála. En ekta labr- inn þolir illa sumarhitann, svo menn reyna að selja hann fyrir miðjan apríl. Má því telja, að islenzki fiskurinn sé einráður á markaðinum frá miðjum apríl til miðs októbers, og ætli hann því að hafa góða aðstöðu. Þar eð innflytjendur til Suður-Spánar verða að hafa all-dýr kælihús, vegna sumarhitanna, hefur innflutningurinn lent í höndum færri manna upp á síðkastið. Er naumast hægt að telja, að innflytj- endur séu nema tveir eða þrír i hvorum aðalbæjanna á Suður-Spáni. í Sevilla eru aðeins tveir innflytjendur, er ráðstafa þeim 8 þús. smálestum, sem þangað flytj- ast: Ulbú frá Trueba y Pardo og Casa Lazo. I Malaga er einnig útbú frá Trueba y Pardo og útbú frá Hijo de Guillermo Campos, er hefur aðal-aðsetur í Alicante. Er það mjög stórt firma, sem einnig hef- ur útbú í Valencia. í Alicante er aðal- aðsetur Hawes y Cia, Ltda. (Espana), sem hefir geysimikil fryslihús og mikinn innflutning frá Newfoundland. Sagl er að eitt af þessum stóru innflutningsfirm- um hafi samning við íslenzkt félag, um að það kaupi ekki fisk af öðrum en því, meðan það hefur fisk að bjóða. Aftur á móti skal spánska firmað fá fisk fyrir það verð, sem því býðst fiskur annars- staðar að. Eftir því sem umboðsmaður annars islenzks útflutningsfirma bauð fisk sinn lægra verði, gat þelta spánska firma fengið fiskinn fyrir lægra verð hjá viðskiptamanni sínum. Eru svona samn- ingar mjög varasamir og geta orðið land- inu all-dýrir, ef þeir hafa ekki að bak- hjarli skiftingu á markaðinum, þvi ella verða þeir ekki til annars, en fylla vöru- skemmur Spánverja með mjög ódýr- um fiski. Portúgals-markaðurinn er alveg nýr fyrir Islendinga. Árið 1929 var sama sem ekkert flutt frá íslandi til Portúgals, en 1930 var 14—15% af saltfiskinnflutningi þess lands frá Islandi. í fyrra nam hann 26 °/o, en til aprilloka þessa árs nam hann 44 °/o af öllum saltfiski sem þang- að var fluttur. Svo sem kunnugt er, eru þar tvær inn- flutningsborgir, höfuðborgin Lissabon, og Oporlo. Eru þær harla ólíkar hvað salt- fiskinnflutninginn snerlir. Lissabon vill hvítan fisk, eins og hann er verkaður á Islandi og í Noregi, enda hefur Noregur átt þar góðan markað frá fornu fari. lJar keppir því nær eingöngu norskur og ís- lenzkur fiskur. Nemur innflutningur um 16.000 smálestum, 10.000 frá Noregi, en 5.000 frá íslandi, og 1.000 annarsstaðar að. Normenn hafa mjög sterkt sölusam- hand um fisk, sem seldur er til Lissabon, og lialda allir sama verði. Gera þeir aft- ur stórum viðskiptamönnum til góða, eftir ársviðskiftum hvers eins, og greiða

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.