Ægir - 01.07.1932, Side 23
ÆGIR
177
átti að fara á sjóinn, hugsaði ég: »Allir
þínir gallar, tærð og sprungin bönd eru
nú mönnum hulin, það gerir málningin
og gyllingin, nú átti þú að reyna þig við
haföldurnar og mennirnir hafa sett þig
i flokkinn 100 A 1, þrátt fyrir ónýtu
naglana og aðra galla, sem að réttu lagi
ætlu að setja þig í sama flokk og lík-
kistur þær, sem skipað hefir verið að
höggva upp. Nú fer ég að skilja hvað
orðið hefur af skipunum »Ismaelia«,
»Bernina«, »Bayard«, »Homer«, »Stam-
fordham«, »Telford«, »Zansibar«, »Tox-
ford«, Sylvia«, »Surbiton«, »Joseph
Pease« og hinum 40 bresku gufuskipum,
sem hurfu árið 1892. Voru naglar of
lýrir og losnuðu plöturnar hver frá ann-
ari er þeir hrukku í sundur, eða hvað?
»Board of Trade« og »Lloyd« má ekki
ásaka. Þær stofnanir velja menn í hið
vandasama starf, sem skipaeftirlitið er.
Þessir menn hafa kaup rétt í meðallagi
°g þar sem svo er, má beita ýmsu til
þess að rugla góðum ásetningi, en bregð-
ist allt, þá er reynt að láta þá skoða hið
versta í gegnum kampavínsglasið.
Þetta er að eins stuttur útdráttur úr
grein þessa manns. Er hann víða harð-
orður mjög um, hvernig lífi sjófarenda
sé stofnað í hættu sökum þess sleifar-
lags, sem eftirlitsmenn sýni. »Board of
Trade« og »Lloyd« eru úr allri sök, þau
hafa sina trúnaðarmenn (skipaeftirlits-
niennina) og eigendur skipanna hafa
skoðunarvottorðið, sem segir skipið gott.
Hann minnist á gamalt seglskip, sem
hafði fengið sjóferðaskírteini (Södygtig-
hedsattest) undirskrifað af »Board of
Trade« manni. Ferðalag þess skips var
hörmung og hann kallar það, sem fram
kom í réttarhöldum svívirðingu fyrir hina
hresku þjóð og sé gott dæmi upp á, að
trúnaðarmenn flokkunarfélaga (eftirlits-
rnenn) stofni visvitandi, eigum og lifi
manna i hættu, og séu þannig sjálfir
hættulegir menn fyrir mannfélagið.
Síðan grein þessi kom út, hefur mikil
bót orðið á frágangi öllum á skipum og
eftirlitið batnað, en meðan á heimsstyrj-
öldinni stóð, urðu menn að flýta öllu,
jafnt skipasmíðum og öðru, og óvönduð
skip munu enn vera í ferðum á hafinu,
og óvönduð getur vinna ávallt orðið, sé
eftirlit ekki gott.
Umsjón með skipum og smiðum þeirra
verður að vera nákvæm og góð, sé svo
er fyrsta og aðalskiiyrði til öryggis á
sjónum fullnægt, hvort heldur átt er við
mannslíf eða góz, er flutt er. Góðir eftir-
litsmenn geta ekki búist við vináttu eig-
enda skipasmíðastöðva, eru jafnvel illa
þokkaðir menn hvarvetna, þar sem spor
þeirra eru aukin útgjöld, en þeir verða
að fara sínu fram og hugga sig með, að
þeir framkvæma verk, sem þúsundir
sjófarenda blessa þá fyrir, þegar þeir
framkvæma skoðun eins og ber.
Útflutningur sjávarafurða til
Þýzkalands.
Samkvæmt þýzkum hagskýrslum hef-
ur verið flutt út héðan :
1930: 1931:
Lýsi, smálestir . . 2922 1589
ísfiskur, smál. . 198 2036
Saltsíld, tunnur . . 2810 15273
FiskimjöJ, smál. . . 4304 4785