Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1933, Síða 7

Ægir - 01.07.1933, Síða 7
ÆGIR 173 fjárhæðinni, svo greinilega, að ekki verði um vilst. Erindi um endurgreiðslur á innflutn- ingsgjaldi af benzíni fyrir undanfarin endurgreiðsluár, sbr. 2. gr., skulu vera komnar til fjármálaráðuneytisins fyrir 1. október ár hvert, í fyrsta sinni fyrir 1. október næstkomandi. Ef beiðni er send lögreglustjóra áleiðis til fjármálaráðu- neytisins, skal hún hafa borist til lög- reglustjóra fyrir 1. september ár hvert, í fyrsta sinni fyrir 1. september næst- komandi. Reglugerð þessi er sett samkvæmt lög- um nr. 84, 6. júlí 1932 og birt til eftir- breytni öllum þeim, sem hluteiga að máli. Fjármálaráöuneytið, 4. júlí 1933. Ásgeir Ásgeirsson. Páll Eggert Ólason. Skýrsla nr. 2 Fiskifélags íslands, frá erindrek- anum í Norðlendingafjórðungi, Ég hef ferðast mikið um fjórðunginn síðan ég gaf síðustu skýrslu, eins og Fiskifélagið sér af ferðakostnaðarreikn- ingi mínum, og skal ekki farið nánara ’íf í það hér. Ég mun, í lokaskýrslu ttnnni, skýra frá ásigkomulagi deildanna, eins og ég er vanur að gera við hver aramót. — Þó á ég enn eftir að heim- ssekja Þórshöfn, Raufarhöfn og Skaga- ströndina. Þegar ég fór um Skagafjörð- inn í vor, gat ég ekki farið lengra vestur Vegna óhagstæðra ferða, þá ekki orðið bilfært, en ég hef hugsað mér að skreppa þangað vestur innan skamms, og sömu- ieiðis til austurhafnanna þegar tækifæri gefst hentugí til þess. Ég veit ekki enn með vissu hve margir bátar muni ganga til þorskveiða af Húna- flóa, þar sem vertíð þar mun rétt í þann veginn að byrja, en skýri frá því síðar. Af Sauðárkróki og Skaganum að aust- an, ganga 1 dekkaður vélbátur, 9 opnir vélbátar og eitthvað lítið af árabátum við og við, sem fiska aðallega til beima- neyzlu. Afli til verkunar er þar orðinn ca. 425 skpd. Austan Skagafjarðar eru 14 opnir vél- bátar og mun aflinn þar vera orðinn um 400 skpd. — Við Skagafjörð eru róðrar almennt stundaðir mjög stopult, einnig á vélbátunum, og mikið af fiski selst í sveitirnar. — Á Haganesvík er engin útgerð í sumar. Rá er komið að þeim stóra stað Siglu- firði. Flest hafa gengið þaðan samtímis 14 skip og stærri vélbátar, 20 vélbátar undir 12 tonnum og 12 opnir bátar. — Allur afli þar er talinn að vera ca. 10800 skpd. frá ársbyrjun til júníloka. — Úr Héðinsfirði er engin útgerð í þetta sinn. Frá Ólafsfjarðarhorni og Kleyfunum hafa gengið flest, 3 stærri og 11 minni dekkaðir vélbátar og 19 opnir vélbátar. Þar er aflinn talinn um 5300 skpd., er sennilega eitthvað meiri, eins og reyndar viða annarstaðar, því þar sem fiskurinn ekki er veginn inn í hús til söltunar, er venjulega áætlað heldur minna en meira, þegar talið er fram til skýrslugerðar. Við það verður ekki ráðið. Af Dalvík og Upsaströnd hafa gengið 11 vélbátar undir 12 tonna stærð og einn þar yfir (keyptur í sumar), 11 trillu- bátar og 3—4 árabátar með köflum. Afl- inn er þar talinn 3120 skpd. Úr Hrísey hafa gengið 17 dekkaðir vél- bátar og 12 opnir. Opnu bátarnir þó ekki að staðaldri, allir. — Aflinn telst vera ca. 3700 skpd. Af Árskógsströndinni hafa gengið flest

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.