Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1933, Blaðsíða 9

Ægir - 01.07.1933, Blaðsíða 9
ÆGIR 175 því aldrei orðið beituskortur og beitan með ódýrara móti. Fyrir nokkru fóru menn að fá hafsild í reknet og nú síð- ustu daga töluvert í herpinót, sem skilj- anlega fer öll í bræðslurnar. Engin slys eða sérleg óhöpp hafa kom- ið hér fyrir, það sem af er vertíðinni, að því undanskildu, að unglingspiltur hrökk út af vélbát í Hrísey og drukknaði. Nú er verið að hressa upp á og undir- búa hverja stærri fleytu, fyrir síldartím- ann, en hve mikil þátttaka smærri bát- anna verður í síldarveiðum, fer alveg eftir þvi, hverjar söluhorfurnar verða og hversu þorskaflinn gefst, en viðbúnað munu flestir þeirra hafa, til að geta tekið hvort sem betra lízt. Einn nýr vélbátur hefur verið keyptur inn í fjórðunginn í vor, frá Noregi (til Dalvíkur). — Er báturinn talinn að vera 14 tonn og hefur 40 ha. Tuxham-vél. — Von mun og næstu daga á veiðiskipi, aðkeyptu frá útlöndum, hingað til Akur- eyrar, en um það skrifa ég nánara síð- ar, þegar betri vitneskja er fengin. Læt ég svo staðar numið að þessu sinni. Akureyri, 3. júlí 1933. Virðingarfyllst. Páll Halldórsson. Fiskveiðar Dana 1932. Árið 1932, var afli alls tenginn úr sjó, og veiddur á dönsknm skipum, 89.847 tons, að verðmæti 33,2 milljónir króna. Árið 1931 var afli alls 87.995 tons, en verð á fiski var þá hærra og fengust þá fyrír hann 34,3 milljónir krónur. Um 20 þúsund manns, höfðu atvinnu við veiðarnar en V3 af þeirrí tölu stund- uðu veiðar og annað er þeim fylgdi, í hjáverkum. Tillaga um styrk til sænskra síldveiðamanna r við Island. Til þess að Svíar geti haldið áfram síldveiðum við ísland og veitt þeim vinnu, sem þær veiðar stunda, hefur verið skorað á landbúnaðarmálaráðherr- ann sænska, að hann ynni að því, að veittar væru 60 þúsund krónur, til að greiða með þóknun til fiskimanna, er nemi 2 kr. fyrir hverja fullsaltaða eða kryddaða tunnu af nýrri síld, veiddri við Island og flutt á þeirra skipi eða látin í annað sænskt skip og afhent kaupanda í Svíaríki. Ætti þá hver fiskimaður að fá þóknun, er yrði t. d. 150 krónur af 600 tunnum, fram yfir markaðsverð; er það góð viðbót fyrir þann skamma tíma, sem síldveiðar við ísland eru stundaðar. Þetta veikir einnig tillögu þá, sem fram hefur komið um skipulag fyrir innflutn- ing á íslenzkri síld, þar sem slíkt virðist eigi auka sildveiðar Svía við lsland. Innflutningshömlur á saltaðri síld verða lílt framkvæmanlegar, þar sem Svíar hafa lítið gert að því að framleiða salt- síld sjálfir, hin síðustu árin, svo ákvörð- un um hlutföll innflutnings verða eigi ákveðin. Jafnvel reglugerð um innflutn- ing á kryddsíld, sem, að því er virðist, væri framkvæmanleg, yrði aðeins til þess að hækka verð á þeirri, sem Svíar veiddu, fram ytir almennt markaðsverð, og þegar svo er komið liggur næst, að niðursuðu- verksmiðjurnar geri út skip og sildar- leiðangra, eða tækju það fyrir að nota aðeins saltsíld sem hrávöru í stað krydd- sildar; yrði það mikill hnekkir fyrir sænska fiskimenn, sem stuuda sildveiði við ísland og krydda veiði sina. Reglugerð um innflutning á kryddsíld

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.