Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1933, Blaðsíða 18

Ægir - 01.07.1933, Blaðsíða 18
184 ÆGIR um. keyptu Bretar það, tóku úr því vélar, breyttu reiða þannig að skipið var fjórsiglt barkskip og hófust þá Ástraliu- og Kínaferðir þess. Þrátt fyrir aldur skipsins og þessa miklu breytingu, kom það þegar í ljós á hinum fyrstu ferðum þess, að hér var um seglskip að ræða, sem kvað að. 18 og 20 sjómilur á hlukkustund má víða sjá skráð í dagbókum þess hin fyrstu árin — og nokkur met, sem »Lancing« setti, standa óhögguð þann dag í dag, t. d.: Frá New-York til Orkneyja á 8 dögum. — Frá Osló til Melbourne (Ástra- líu) á 72 dögum. Mældur hraði 18 sjó- milur í samfleytt 72 stundir. — Á þeirri ferð frá Rio de Janeiro til New Cale- donia, var meðalhraði alla leiðina \2lh sjómíla. — Eitt metið, er 22 sjómílur í 15 samfleyttar stundir á leið til Ástralíu. Það met setti skipstjóri M. B. Melsom, eftir að Norðmenn eignuðust skipið. Ár- ið 1902 var það 69 daga á leiðinni frá St. Johns N. B. til Melbourne í Ástralíu. Hinir síðustu eigendur þessa skips, voru Melsom og Melsom í Osló. Þegar þeir seldu »Lancing« til niður- rifs, fyrir fám árum, fengu þeir gott verð vegna hins ágæta efnis, sem i skipinu var. ítalir keyptu það. Um 1920 lá hér við hafnaruppfylling- una, fagurtlangferðaskip sem »Coriolan- us« heitir og hét. Það var þá í eigu Norðmanna. Margir horfðu á hið fagra skip, en fæstir vissu að það var methafi á mörgum siglingaleiðum á hafinu og þá frægt skip, smíðað hjá A. McMillan & Son í Englandi; sigldi það fyrst undir brezkum fána, síðan norskum og að sið- ustu undir amerískum fána, og er nú ætlun Ameríkumanna að halda skipinu við og geyma það sem þjóðareign til minningar um afreksverk seglsldpa þeirra á hafinu. Exposition Maritime Internationale. Alþjóðasýning með þessu nafni var haldin í Bordeaux á Frakklandi fyrir 26 árum, eða timabilið frá 1. maí til 1. nóv. 1907. Var það stjórn Frakklands, sem einkum hvatti og studdi það að sýning þessi var haldin. Allar þjóðir, sem vildu gátu tekið þátt í sýningunni og fengið skála fyrir muni þá, sem sýna skyldi. 1 þeirri deild, sem geymdi allt það, sem að fiskveiðum og farmennsku lýtur, var niðurröðun muna og áætlaðir starfs- hætlir þessir: 1. Saga verzlunar- og fiskveiða. 2. Kennsla. 3. Sjóbréf (kort) og mælingatæki. 4. Allzkonar efniviður í skip. 5. Mótortegundir og skipskrúfur. 6. Ýms áhöld til skipa. 7. Mótorbátar og aðrir bátar. 8. Loftför. 9. Hafnarvinna (sýnd tæki). 10. Fiskveiðar í sjó og vötnum. 11. Björgunartæki o. fl. 12. Mataræði á skipum. 13. Ýmiskonar iðnaður (smíðisgripir og seglasaumur). 14. Fyrirlestrar um vinnu á skipum, í- þróttir, iðnað, verzlun, viðhald skipa og hagfræði. Yerðlaun voru, heiðursskjöl, gull-, silf- ur og bronsepeningar. Á Fiskiþingi 1921, kom fram tillaga þess efnis, að stofnað væri til fiskisýn- ingar í Reykjavík og var nefnd kosin til að athuga það mál. Að loknu starfi, bar nefndin fram eft- irfarandi tillögu : »Fiskiþingið felur stjórn Fiskifélags ls- »lands, að skrifa öllum félögum og »ýmsum einstökum mönnum innan-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.