Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1933, Page 3

Ægir - 01.08.1933, Page 3
ÆGIR MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS Reykjavik. — Ágúst 1933. Nr. 8. Viðhald báta. Við, sem erum það gamlir að muna þá tlð, þegar róðrarbátar voru nálega þær einu íleylur, sem notaðar voru til þess að sækja fisk í sjó, munum einnig eftir þeirri vandvirkni sem sýnd var, þeg- ar bátar, sexæringar og áttróin skip voru hreinsuð á sumrin og tjörguð. Áður en skipin voru tjörguð, voru þau skafin og sópuð vandlega. Hrátjaran sem borin var á þau, mátti ekki vera þykk og voru því hitaðir steinar og látnir í hana, með- an verið var að tjarga; hélst þá tjaran mátulega þunn og drýgðist jafnframt. Mönnum þótti þá vænt um bátana sína og gáfu sér góðan tíma til að ganga sem bezt frá öllu, og ending þeirra varð eftir þvi. Sama vandvirkni var viðhöfð er gengið var frá þilskipum á haustin eftir sumarvinnuna. Þau voru skafin, bikuð °g máluð, bómur og möstur skafin og borin á þau fernisolía; væri skipsbotn rakur er bika skyldi hann, var kveikt á blysi og staðir þeir þurkaðir og velgdir þar sem bika átti, því menn höfðu þá h'ú, að þessi vinna væri til bóta fyrir efni skipsins, væri hún framkvæmd með athygli og til hennar vandað og höfðu reynzlu fyrir því, að málning og tjara kæmi að litlu haldi, sem varnarmeðal fúa, væri það borið á rakt eða blault tré. Þessi vandvirkni hverfur smám sam- an eftir því sem hraði á öllum sviðum eykst í heiminum og ekki vinnst tími til eins og annars, sem þó ekki má kasta höndunum til, ef vel á að fara. Meðferð á bátum almennt nú á tímum, er ekki hin sama og var, hvorki að því er hreins- un lýtur né hvernig ailt er undirbúið til þess, að tréð eða annað efni skipa og báta hafi sem mest gagn afáburði þeim, sem borinn er á það, hvort heldur er tjara, fernisolía eða málning. Virðing sú, sem menn áður báru fyrir fleytunum sínum, er að hverfa. Nýr siður rj'ður sér nú til rúms þeg- ar um hirðingu á siglum og bómum ræðir og má telja siðinn nokkuð smit- andi. Kemur þar fram þetta einstaka tímaleysi manna yfirleitt, því hér má ekki kenna því um, að sjómenn lands- ins viti ekki, að þessi nýi siður er alls ekki til bóta og er jafnvel hlægilegur og nú er bezt að nefna hvar í hann er fólg- inn, en örlítinn formála þarf til skýr- ingar. Á mótorbátum, sem stunda róðra eða flytja vörur, eru siglutré, bómur og gafl- ar, segl og á þeim hin svokölluðu mast- ursbönd, sem eru svigagjarðir um sigl- una, sem seglin eru fest við, svo þau haldist að henni þegar þau eru dregin upp. í hvert skifti sem gaffall og gjarðir þessar fara uppeftir siglu eða segl er dregið niður, þá smáeyðist siglan sjálf eða áburður sá, sem á hana hefur verið borinn til þess að verja hana fúa, (því siglur eru dýrmætir hlutir á skipi) og vátrvggingarfélög greiða ekki skaðabætur

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.