Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.1933, Qupperneq 8

Ægir - 01.08.1933, Qupperneq 8
194 ÆGIR bálar og 9 árabátar. Afli í júnílok: 3200 kg. stórflskur og 57000 kg. smáfiskur. Ég vil nota tækifærið og minnast enn á hafnargarðinn á Skálurn. Eins og ég hef getið um áður, var í fyrra haust efri endi garðsins hækkaður með trébúkkum fylllum grjóli, lil að verja að grjót og möl bærist inn í vörina. Þelta hefur að miklu leyti komið í veg fyrir malar- burðinn og hefur þó verið mjög brima- samt á Skálum í vetur. Stöðvast nú mölin við garðinn utanverðan. Til þess þó að þetta korni að fullum notum, þarf að bæta fleiri búkkum á garðinn — hækka hann lengra fram — svo að ekki berist möl inn yfir neðan við búkkana, sem þegar eru settir, en á því er hætta, á meðan malarkambur er að myndast utan við garðinn. Er í ráði að hefjast handa um þessa viðbót á þessu ári. Þetta verk allt, og að ryðja vörina, kostar talsvert fé. Hefur nokkuð verið lagt fram af einstökum mönnum og margir hafa gefið dagsverk. Hætt er þó við að örðugt reynist að fullgera þelta verk án fjárstyrks annarsstaðar frá og væri vel, ef unnt væri að styrkja þetta fyrirtæki svo, að það geti lcomið að full- um notum, þar sem ekki virðist vanta nema herzlumuninn. Framtíð Skála sem útvegsstaðar byggist á því, að unnt sé að verja vörina. ósérplægni sú er sýnd befur verið við þetta verk, verðskuldar sannarlega ofur- litla hjálp til að ná fullkomnum árangri. Gunnólfsvík: Veiði byrjaði þará2ára- bátum eftir miðjan maí en nú slunda þaðan 3 opnir vélbátar og er afli þar 2400 kg. stórfiskur 7200 kg. smáfiskur. Bakkafjörður: Þar er veiði hafin að- allega eftir miðjan maí, að eins reynt áður. Fram til 15. júní héldu þaðan út 4 opnir vélbátar en í júnílok eru þar 8 opnir vélbátar og 4 árabátar. Síld var þar næg síðast í júní en lítið farið að nota lóðir því að fiskur gafst vel á færi. Afli þar í júnilok 9300 kg. stórf., og 26020 kg. smáfiskur. Á Vopnafirði byrjaði veiði eftir miðjan maí og er þá stunduð á 8 opnum vél- bátum. I júní er veíði stunduð á 3 vél- bátum undir 12 lesta og 9 opnum vél- bátum. Sfærri bátarnir eru frá Vest- mannaeyjum og leggja þeir afla sinn þarna á land í sumar. Veiði í júnílok 10140 kg. stórf. og 56020 smáfiskur. Borgarfjörður: Þar hófst veiði lítils- háttar fyrri hluta maímánaðar, eníjúni- lok er veiði slunduð af 3 opnum vél- bátum og 3 árabátum. Afli á þessa báta er 3700 kg. stórfiskar og 30900 kg. smáf. Seyðisfjörður: í fyrri skýrslu minni, er þess gelið, að á Hornafirði stundi veiðar 6 bátar þaðan og er því afli þeirra talinn þar. Frá Vestmannaeyjum og Akra- nesi eru til Seyðisfjarðar komnir 12 bát- ar er ætla að stunda veiði þaðan í sum- ar. Fram til maíloka stunduðu veiði þeg- ar flest var, 3 vélbátar yfir 12 lesta, 10 undir 12 lesta og 15 opnir vélbátar, en í júnílok er bátatala þar þessi: 13 vél- bátar yfir 12 lesta, 12 undir 12 lesta og 13 opnir vélbátar. Afli í júnílok 194940 kg. stórfiskur 74460 kg. smáfiskur. Mjóifiörður: Þaðan hafa stundað veið- ar 2 bátar undir 12 lesta og 20 árabát- ar. Á þessa báta er afli 15. júní (því síð- ari hluta júní hefur þar ekkert veiðst) 62800 kg. stórfiskur og 52400 kg. smáf. Norðfjörður: Þaðan hafa stundað veið- ar mest 11 vélbátar yfir 12 lesta, 12 und- ir 12 lesta og 15 opnir vélbátar. Afþess- um bátum voru 7 við veiði á Hornafirði og 3 á Djúpavogi. Norðfirðingar hafa því raunverulega meiri afla en hér verður talinn. Samanlagður afli þessara báta heimaveiddur er 362550 kg. stórfiskur og 127530 kg. smáfiskur.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.