Ægir - 01.09.1933, Blaðsíða 7
ÆGIR
213
yfir markaðshorfur þessarar vöru í ýms-
um löndum. í þessu sambandi ber þó
að geta þess, að fiskimjölsiðnaður er
víðast hvar svo ungur, að nákvæmar
skýrslur um framleiðslumagn, tölu og
stærð verksmiðjanna o. s. frv. eru enn
mjög af skornum skamti. Heimildir þær
sem ég hefi, eru því sumpart blaða- og
tímaritsgreinar, en þó sérstaklega skýrsl-
ur tvær, sem verzlunarráðuneyti Banda-
rikjanna hefur safnað um þetta efni.
Þgzkaland. Hagskýrslurnar þj7zku segja
ekki til um það, hvað margar fiskimjöls-
verksmiðjur eru í Þýzkalandi, en alment
er talið, að þær séu nálægt tuttugu. Að-
setur þeirra er í Hamborg, Cuxhaven og
svo við Weserfljótið. Árleg framleiðsla
er ca 13—15000 tonn fiskimjöls og mun
35°/o af þvi vera framleitt í Hamborg,
30% í Cuxhaven og hitt við Weser. Þessi
iðnaður er hér talsvert gamail, enda var
Þýzkaland eitt við fyrsta land, sem í
stórum stíl tók að nota fiskimjöl til
skepnufóðurs. Sem stendur er og mark-
aður fyrir fiskimjöl hér í Þýskalandi sá
umfangsmesti sem enn er að finna í
nokkru landi. Nolkun fiskimjöls hefur
aukist hér mikið á síðari árum og mun
breylt stefna í tollmálum að einhverju
leyti vera völd að því. Hækkandi
tollar á kornvörum gerðu bændum
ókleift, i sama mæli og áður, að nota
korn til skepnufóðurs. 1 þess stað var
tekið að nota meira kartöflurog rófur.
En nú hefur það komið í ljós, að sé t.
d. svini gefið korn, þarf það að jafnaði
allt að 25 °/o af eggjahvítuefnisríkum fóð-
urbæti, sé það aftur á móti fóðrað á
kartöflum og rófum er þessi fóðurbætis-
skerfur talsvert meiri, eða nánar tiltekið
ca. 40 °/o Þetta hefur orðið til að auka
uotkun fiskimjöls stórkostlega, og það
Því fremur sem fleslir bændur, sem í
norður- og vestur Þýzkalandi fást við
svínarækt, þekkja gildi fiskimjöls sem
kraftfóðurs og kunna réttilega að fara
með það. Hin mikla notkun fiskimjöls
hér í Þýzkalaadi gerir það að verkum,
að Þjóðverjar verða árlega að flytja inn
mikið af þessari vöru. Tafla sú, sem hér
fer á eftir segir til um innflutning þennan:
Ár Tonn Milj. Mk
1923 .......... 6 302 »
1925 ...... 45700 »
1929 ........ 118 057 »
1930 ........ 103 544 33,1
1931 ......... 74 968 20,9
1932 ......... 78 834 13,6
Því miður greina verzlunarskýrslurnar
þýzku ekki á milli þess mjöls, sem uot-
að er til áburðar og þess, sem notað er
til skepnufóðurs. Þó mun það láta nærri,
að 90% af fiskimjölsinnflutningnum sé
eingöngu notaður til hins síðarnefnda.
Innflutningur sá, sem hér er sýndur kem-
ur víða að. Megnið af honum, eða allt
að 60% kemur frá Noregi, talsvert kem-
ur og frá Bretlandi, og 1932 er ísland
þriðji stærsti innflytjandinn. Fiskimjöls-
verzlun okkar við Þýzkaland hefur auk-
ist mjög hraðfara undanfarin ár, eins og
sézt á því að árið sem leið fluttum við
þangað 8 815 tonn gegn 7 349 tonnum
1929 og að eins 1 934 tonnum 1926. Þessi
aukning fiskimjölsútflutnings okkar til
Þýzkalands er því merkilegri, sem víð
höfum, að því er virðist, unnið fótfestu
á þýzka markaðinum á kostnað keppi-
nauta okkar, að minnsta hefur fiskimjöls-
útflutningur allra annara landatil Þýzka-
lands hrakað mjög síðustu 2 árin. Gæti
slíkt bent á gæði íslenzka fiskimjölsins.
Það væri mikils umvert fyrir alla út-
flytjendur, ef hægt væri að segja með
vissu, úr hvaða hráefnum fiskimjöl það,
sem selzt á þýzka markaðinum er unnið.
Með slíkri þekkingu má betur taka tíllit
til óska kaupenda og haga framleiðsl-