Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1933, Blaðsíða 8

Ægir - 01.09.1933, Blaðsíða 8
214 ÆGIR unni að einhverju leyli eftir því. Hér er samt við ramman reip að draga, því að framleiðsluskýrslur eru allar af skornum skamti, eins og þegar hefur verið bent á. Þó mun það láta nærri, að ca. 60% af fiskimjölsútflutningi Norðmanna til Þýzkalands sé unninn úr síld. 1929 var ca 70% af því mjöli, sem við seldum hingað síldarmjöl. Aftur á móti mun ekkert af því fiskimjöli, sem kemur frá Bretlandi, sem þó er annar stærsti inn- flytjandinn, vera unnið úr síld (heldur er það svokallað whitefish-meal). Töl- urnar hér að framan yfir inntlulninginn sýna, að á tiltölulega skömmum tíma liefur tekist að skapa öflugan markað fyrir fiskimjöl hér í Þýzkalandi, því að útflutningur héðan er sáralílill. Árið 1932 var hann 6800 tonn fyrir 1,6 milj. rikis- rnörk. Útflutningur þess var einkum til Austurríkis, Sviss og Tékkóslóvakíu. Allt fram að þessu hafa þessi lönd notað lít- ið af fiskimjöli, en kunnugir telja, að þar muni góða markaði að finna þegar eitthvað fer að rofa til í búslcaparlífi þeirra. — Undanfarin tvö ár virðist, eft- ir innflutningnum að dæma, að þýzka markaðinum hafi hrakað mikið. Aftur- kipp þenna má samt ekki taka of alvar- lega, því að telja má, að hann sé meira kreppunni að kenna, en að vinsældir fiskimjöls fari hér almennt þverrandi. Hið iskyggilega mikla verðfall, sem virðist hafa orðið 1932 er og sumpart þannig tilkomið, að flest þau lönd, sem selja fiskimjöl til Þýzkalands hafa lækkaðgengi sitt að mun gagnvart markinu. Fyrir þessa sök lítur verðfallið stórkostlegar út en það í rauninni er. — Til athugunar þeim, sem selja fiskimjöl hingað til Þýzka- lands, má geta þess, að eftirspurnin eft- ir þessari vöru er mest að haustinu, og nær hún að jafnaði hámarki sínuíoktó- ber. Annars er eins og gefur að skilja á öllum tímum árs einhver eftirspurn eft- ir fiskimjöli. Holland. Búskap Hollands er á þann veg háttað, að markaðsskilyrði fyrir fiski- mjöl eru þar mikil fyrir hendi. — Hin mikla nautpenings-, svina og alifugla- rækt leiðir af sér mikla eftirspurn eftir hverskonar fóðurbæti. Hollenskir bænd- ur hafa og á síðari árum gertsérfarum að auka framleiðslu sina með bættum fóðrunaraðferðum og aukinni kraftfóður- notkun. Innflutningsskýrslurnarsýna þetta talsvert greinilega. Árið 1926 var þannig fluttur inn fóðurbætir fyrir 420,000 doll- ara, 1930 fyrir 2,686,000 dollara. Drjúg- ur skerfur af þessu er fiskimjöl, enda hefur notkun þess aukist ár frá ári, eins og innflutningstölur þær, sem hér koma á eftir sýna : Ár Tonn Gyllini 1928 ........ 11 876 2 327 000 1929 ........ 15 074 2 817 000 1930 ........ 21 030 3 892 000 Útflutningur HoIIands á fiskimjöli er óverulegur. Þannig var árið 1930 flutt út þaðan 753 tonn og var það rúmum 100 tounum meira en árið áður. Fiskimjöls- innflutningur sá, sem hér er sýndur, kemur að sjálfsögðu víða að. Árið 1930 kom frá Noregi 7 700 tonn, frá Bret- landi 5 420 tonn, frá Canada 2 597 tonn og frá Bandarikjunum komu 2 298lonn. ísland hefur á síðari árum selt dálitið á hollenzka markaðinum, 1930 t. d. 160 tonn, og er það lítilsháttar meira en með- altal undanfarinna ára. Fiskimjölsfram- leiðsla er lítil í Hollandi og fulínægir að eins litlum hluta af heimamarkaðinum, eða nánar tiltekið ca. 16% árlega. Þær átta verksmiðjur, sem 1931 eru taldar að vera í landinu, framleiða samtals að eins 3—5 þúsund tonn ári. Um veruleg- an vöxt þessa iðnaðar í Hollandi mun á

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.