Ægir - 01.09.1933, Page 20
226
ÆGIR
Tvisvar varð að nauðlenda annarstað-
ar en á flugvellinum. 1 bæði skiftin vegna
villu. Fyrra sinnið var þegar Boscb flug-
maður varð að lenda suður á Vatns-
leysuströnd (á Auðnum) 29. des. siðastl.
Hann viltist í útsynningséli uppi í hálofti,
sem hélst alla leið niður að jörð, og var
kominn út yfir sjó, þegar hann sá til jarðar.
Flaug hann svo um hríð, að hann sá
ekkert til lands. En þegar hann tók land
— á Vatnsleysuströndinni — var bensín-
forði hans svo á þrotum, að hann sá
engan kost annan, en að lenda þar, sem
hann var kominn. Tókst lendingin svo
illa, að flugvélin stakst kollhnísu og
brotnaði af henni aunað hjólið, skrúfan
og efri vængurinn, en flugmaðurinn hékk
í öryggisólunum með höfuðið niður. —
Slapp hann þó án nokkurrar skrámu og
rækti starf sitt næsta dag, eins og ekkert
hefði í skorist. Síðara skiftið nauðlenti
hann á túninu á Miðfelli í Þingvallasveit;
það var 21. maí í vor. Var sú lending
gerð til að »spyrjast til vegar«. Flug-
maðurinn var villtur, vegna þess, að
lokast hafði fyrir jarðsýnina meðan hann
var uppi og vindstaðan í hálofti er oftast
Ónnur en niðri við jörðina, — stund-
um hafa flugmennirnir lent í ofsaroks-
strengjum í háloíti. Þegar lygnt hefur
verið á jörð niðri, eða öíugt, — svo að
ekki er unnt að halda stefnunni eða
ákveða afstöðuna, þó stýrt sé eftir átta-
vita, því að »afdriftin« er óúlreiknanleg,
í þetta sinn gekk lendingin ágætlega, þó
að svigrúmið væri ekki stört (50—60
m.) og þegar flugmaðurinn hafði feng-
ið leiðbeiningu um stefnuna til Rvíkur,
hjá bóndanum þar — sem flugmaðurinn
sagði, að talaði ágætlega ensku —, hóf
hann sig til flugs af sama stað, og var
lentur á flugvellinum hér 20 mín. síðar.
— Þó að svo giftusamlega tækist í bæði
þessi skifti, blandast víst fáum hugur
um það, að flugmaðurinn hefur verið í
mikilli bættur staddur. Er líklegt, að
flugfimi hans og hamingja eigi jafna hlut-
deild í hinum giftusamlegu endalokum.
Tvær langflugferðir voru farnar, til að
leita að tveim útlendum fiskiskipum, sem
fórust hér við land síðastl. vetur. Var
flogið í fyrra sinnið vestur á Snæfellsnes
og alla leið kringum Jökul. 1 siðara skift-
ið var flogið austur með Söndum. —
Leitirnar báru engan árangur.
Rannsóknirnar hér beindust aðallega
að því þrennu, að mæla rakamagn lofts-
ins, hitastig og vindhraða, alt frá yfir-
horði jarðar og upp í 5000 m. hæð a.
m. k. Sendu þeir daglega skeyti um þetta
til miðstöðvar heimskauts-rannsóknanna
í Paris. Ekki er unnt að segja enn, hvert
gagn visindunum verður að rannsóknum
þessum, en gera má ráð fyrir, að margt
merkilegt komi í ljós, þegar bornar eru
saman skýrslur frá hinum ýmsu rann-
sóknarstöðvum, og ef til vill fást þá
ráðningar á ýmsum visindagátum nú-
tímans, sem enn eru óráðnar, — og þá
er starfið ekki unnið fyrir gýg.
Van Giessen lét það álit sitt í Ijósi, að
ekki yrði haldið hér uppi flugferðum
að vetri til, vegna þoku, myrkurs o. fl.,
einnig það, að oft gæti staðið svo á, að
öruggara mundi að senda póst með skip-
um en flugvélum, því þótt skipin væru
rúma 4 daga yfir Atlantshaf, en flugvélar
tvo, gætu tafir þeirra orðið svo, að þær
yrðu seinni en skipin til ákvörðunar-
staðarins.
Hollendingarnir og fjölskyldur þeirra
sigldu með »Lyra« hinn 14. september.
Áskrifendur Ægis
eru vinsamlega beðnir að tilkynna af-
greiðslunni bústaðaskipti í Box 683.