Ægir - 01.10.1934, Blaðsíða 9
ÆGIR
211
eigi var auðið að geravið hana
°g fýlan var svo megn, að
skipverjar urðu að hafa trefla
fyrir munninum meðan þeir
voru að losa flikkið úr vörp-
unni, því daunninn ætlaði þá
að kæfa.
I vélarúmi var fylan svo
raegn, að vélamenn urðu að
binda klúta fyrir vitin til að
geta andað. — Slíkir dræltir
eru orðnir almennir í Faxa-
flóa og er ekki ólíklegt, að
fylan, sem þeim fylgir, sé
baettuleg fyrir heilsu flski-
wanna. Ekki minnist skip-
stjórinn á aflatregðu í sam-
bandi við þennan niðurburð, en hér í
Reykjavík er skipstjóri, sem þekkir Harry
Wick vel og i fyrra sumar hittust þeir
i Grimsby, var H. Wick þá nýkominn
frá Islandi. Fá gat hann þess, að vart
kæmi fiskur í vörpuna á þeim stöðum
bvalflikkin sem væru á reki eða i botni.
Hluti af vélasal í húsi Fiskifélagsins »Hofn«.
Annað vélfræðinámsskeið er um þess-
ar mundir haldið á Húsavik og veitir
því forstöðu vélfræðingur Guðmundur
Porvaldsson. F*að var sett hinn 15. okt.
og sækja það 16 menn.
Haraldur Sigurðsson,
forstöðumaður Elliheimilisins andaðist
eftir uppskurð hinn 13. október.
Vélfræöinámsskeiö.
Hinn 11. dag október 1934, setti vél-
fræðingur Fiskifélagsins, Þorsteinn Lofts-
son, námsskeið það, sem ákveðið varað
balda skyldi í Reykjavik í haust. Náms-
skeiðið sækja 30 menn. Munnleg kennsla
fer fram i fundarsal hins nýja húss, vegna
þess hve margir sækja námsskeiðið, en
verklega kennslan fer fram í vélasal
þess.
Sjóréttardómur í Bremerhaven.
í 5. tbl. Ægis 1934 bls. 123, var skýrt
frá sjóréttarprófi, sem haldið var í Brem-
erhaven yfir fyrsta vélstjóra Skorup á
botnvörpuskipinu Wodan, sem sökk út
af Reykjanesi hinn 26. febrúar s. 1. Ját-
aði Skorup fyrir réttinum, að hann hefði
verið valdur að sljrsinu og að maður að
nafni Kuhr, hefði komið sér til þess með
loforðum um atvinnu og auk þess skyldi
hann fá 10 þúsund mörk í peningum, ef
hann sökkti skipinu.
Dómur hefur nú verið uppkveðinn í
málinu og féll hann þannig, að Johann-
es Skorup var dæmdur í fangelsisvist í
6 ár og missi borgararéttinda í 5 ár, en
Kuhr var dæmdur i 9 ára fangelsi og
missi borgararéltinda i 10 ár.