Ægir - 01.08.1935, Blaðsíða 3
Æ G I R
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS I S L A N D S
28. árg.
Reykjavík. — ág'úst 1935
Nr. 8.
Skýrsla
íiskifulltrúans á Spáni.
Barcelona, 29. júní 1935.
Avenida Pablo Casals.
í júní liefur flskmarkaðurinn yfirleitt
verið dauí'ur hér á Spáni. Fyrra árs fisk-
ur selst að jafnaði illa, þegar farið er að
hitna í veðri og hann hefur tapað lit og
orðinn gulur. Smásalarnir setja þá ein-
hver hleikjandi efni í vatnið sem fisk-
urinn er bleyttur í, lil að liann verði blæ-
fallegur, en þau spilla hragði fiskjarins
mjög. Mun liafa verið meiri lirögð að
þessu í ár en undanfarin ár, og voru
margir smásalar kærðir fyrir þetta nú
fyrir skömmu, því það ér ólöglegt. Sýn-
h' þetta að okkur er ekki til neins að
ætla að halda aftur nýja fiskinum, þang-
að til búið er að selja' gamla fiskinn,
því hann selst ekki og við töpum mark-
aði á því. Neyzlan hér er mest þegar
fiskurinn er nýr og hrágðgóður, í júní,
julí og ágúst og þá er aðalsölutíminn.
Fkki er hin takmarkaða neyzla þó ein-
göngu talin stafa áf gamla fiskinum, held-
ur einnig af því að rauðaldinin, sem hann
er matreiddur með, eru dýr, því vorið
var kalt, en í júní komu ofsahitar.
Er Columbus kom með nýja fiskinn,
færðist mikið fjör í markaðinn og er ís-
lenzkur fiskur nú seldur 2—4 pesetum
hærra en norskur fiskur hefur verið
seldur fyrir undanfarið. Er lítið orðið
eftir af norska fiskinum, nema hjá ein-
um innílytjanda. Hefur hann yfirleitt
verið talinn góður í vor, en nokkuð
misjafnt metinn og selst því ekki fyrir
sama verð og íslenskur fiskur. Yar ver-
ið að hugsa um að senda léttverkaðan
norskan fisk hingað í kæliskipi, en þar
sem von var á nýjum íslenzkum fiski,
tóku innílyljendur þeirri uppástungu
fremur dauflega, og hefir lnin legið í
þagnargildi nú um hríð,og liygg ég,aðhúið
sé að gefast upp við framkvæmd hennar.
Fiskurinn, sem hingað kom með Col-
umbus, þótti góður og líkaði vel. Skip-
ið fékk góða ferð og íljóta, og fiskurinn
fór vel í því, að minnsta kosti það al'
honum, sem hingað kom. Sumum þótli
hann fullmikið þurkaður, en ílestir hafa
þó játað að það sé mikil áhætta, að
senda minna þurkaðan fisk um þetta
leyti árs, þegar mikilla hita er von hér
syðra. Enda voru deigir blettir á um-
búðum ílestra pakkanna. Hefi ég séð
einstaka fiska sem voru rétt byrjaðir að
gulna, en þeir munu undantekning því
yíirleitt mun fiskurinn ekki hafa breytt
lit neitt verulega.
í Billiao hefir markaðurinn verið mjög
rólegur og engar verðbreytingar orðið
þar síðustu fjóra mánuðina. Iiefir sam-
keppnin þar aðallega staðið milli Norð-
manna og Færeyinga, því við höfumlít-
ið senl þangað síðan í aprilbyrjun, er
þangað lcomu 230 lestir frá íslandi.