Ægir - 01.08.1935, Blaðsíða 11
Æ G I R
169
Harðfisk-trönur í Hafnaríirði.
róðrum og má heita að
varla liafi gefið á sjó í
sumar, þar til í byrjun
ágústmánaðar.
Tveir bátar frá Þór-
kötlustaðahverfi liafa lag't
skötulóðir í sumar ogfeng-
ið hæði lúðu og skötu,
en þó minna cn undan-
farin ár. Lúða og ýsa er
Jlult til Reykjavíkur á bil-
um, lúðan þar seld fyr-
ir 63 aura kiló, en ýsa
fyrir 10—12 aura kilo, en
seld er sama lúða í Revkja-
vik fyrir 60 aura pundið og ýsa 20—25
aura pundið. Það er sæmileg álagning.
Fiskur var enginn hertur i vetur, trönum
litið eitt komið upp, en unnið að því nú.
Hinn 19. ágúst losaði »Skaftfellingur«
450 tn. af síld, við bryggjuna í Járn-
gerðarstaðaliverfi; ílutti hann hana að
norðan og fór hún þegarí frystihús Ing'i-
mundar Olafssonar. Menn héldu að síld
væri fyrir landi, því hæði fundust 2 sild-
ir í lúðumaga, hinn sama dag og svo
sást súluger, en útlninað til reknetaveiði
vantar; að vísu eru lil nokkur síldarnet,
en kaball er enginn; var kominn hugur
í suma að reyna líVort síld fengist ekki
i net.
Bryggjan í Járngerðarslaðahverfi, er
hin myndarlegasta, úr steinsteypu og
vel lireið. Ef vel hefði verið, ætli hún
að vera 30—50 cm hærri en hún er,
vegna sjávargangs, en dýpi er gott við
hana, og mikið skjól er af garði þeim,
sem steyptur er fyrir vestan hana; væri
hann lengdur um 15—20 metra, væri
sem i tjörn við hryggjuna. Báðum meg-
in hennar er trjám fest þvers yfir var-
irnar eða fastir hlunnar og á þeim eru
skipin sell upp og ofan og er það hið
mesta þing. Þessir stokkar ná langt fram
með bryggjunni og að vestan alla leið,
út undir enda hennar.
Önnur bryggja er á Þórkötlustaðanesi,
vel há, en þó ekki örðug og er lalin á-
gæt. Þar er þraulalending. Þriðju hryggj-
una er verið að steypa i Staðarhverfi.
íslnis Ingimundar Ólafssonar tók áð-
ur 1000 tunnur af síld, en hefur verið
stækkað og cr nú talið, að það taki um
1200 tn. Þar eru frystivélar.
Bátatryggingarfélag Grindvíkinga er
starfandi; var það stofnað fvrir tveim
árum. Það endurtryggir ekki.
í Grindavík ern 5 lýsisbræðslur, þar
af 2 aðalbræðslur. Fyrir lifur var greitt
sl. vertíð, 17—18 aurar fyrir líler, lirogn
6—10 aura liter.
Fiskbein keypti Emil Rokstað fyrir
140 kr. tonriið, ílutt að verksmiðju í
Reykjavik, annars var verð 100 kr. lonn.
Beitukostnaður varð 8—10 kr. á hvert
skpd. og jafnvel meira.
Ford-benzínvélar eru í ílestum bátum.
Hafa þær reynzl hinar gagnvissustu, en
þykja fremur benzínfrekar.
Tíu ha. Solovélar eru í 3 hátum og
eyddi hver á vcrtíðinni 250 kr. í olíum.