Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.1935, Qupperneq 14

Ægir - 01.08.1935, Qupperneq 14
172 Æ G I R kom fram í maí. í fyrravor var aílinn á Suðureyri talinn 160 smál. og auk þess var nokkuð látið í ísfisktogara í júlí. Bátatala svipuð nú og þá, 4 vélh. og 4 smávélbátar. Bolungavík. Um 300 smál. þar til i júlí. 17 vélb. gengu þaðan jafnan í maí, en um 11 bátar í júní. í fyrravor aflað- ist í Bolungavík 382 smál. Bátatalan svip- uð. Hnifsdalur og Arnardalur. Um 230 smál. á 15—16 vélbáta og 2 áraskektur, þar af um 18 smál. á 3 vélb. og 1—2 árabáta úr Arnardal. Aflinn í fyrra var þarna alls um 325 smál. og bátatala svipuð. ísafjarðarkaupstaður. Rúmar 600smál. á eftirtöld skip: 1 togara, 12 stóra vél- l)áta og 6 minni og auk þess fáeina smá- vélbáta. Stóru vélbátarnir og togarinn voru einungis að veiðum fram undir maílok Aflafengurinn í fyrravor var tal- inn um 1000 smál. Mestur hlut þess afla fékkst í apríl. Álflafjörður. Um 120 smál. á 1 stærri vélbát og 5 báta um og neðan við 12 lestir. I fyrravor var aflafengurinn þarna talinn 233 smál. Bátarnir voru taldir 9 framan af vori, en fækkaði í 6 í april- lok. Ögurnes og Ögurvík. 77 smál. á 7vél- báta og eina áraskektu. í fyrra var afl- inn talsvert minni þarna og fiskveiðar skemur stundaðar. Snœfjallaströnd og Grunnavík. Um 18 smál. á 5—6 smábáta á Snæfjallaströnd, og nál. 6 smál. á 3—4 smábáta, er héldu úti í Grunnavík í júní og fram í júlí. Mjög rýr afli, svipað og síðastl. vor. Sléttuhreppur. Voraílinn þarna er tal- inn nema einungis um 93 smál. Bátatalan var: 2 vélbátar frá Hesteyri, 2—3 vélb. úr Aðalvík og auk þess 2 smávélb., og ennfremur 12—14 áraskektur af Strönd- um og úr Aðalvík. Aflinn á vélbátana var afar tregur, en helzt allaðist á smá- bátana inni á Aðalvík í maí. A Strönd- um var sárlítill afli. Þetta er langléleg- asla vorvertíð, sem komið hefur á þess- um slóðum. Mörg undanfarin vor hefir mátt teljast göðfiski í veiðiplássum þess- um. í fyrra var allinn á 7 vélbáta og 12 smábáta, talinn 220 smálestir. í Steingrímsfirði voru fiskveiðar að byrja í júní og mjög tregur afli. Taldist vera komið þar á land 15—17 smál. í lok júní. I júlímánuði hafa veiðar vfir- leitl verið stundaðar og er aflinn áætl- aður þar uin mánaðamótin, einungis rúmar 60 smál. í fyrra taldist aflinn í júlílok um 280 smál. Af því voru um 80 smál. lagðar upp af línugufubátum af Suðurlandi. Nokkrir bátar héðan úr bænum hafa undanfarið stundað færaveiðar, en ann- ars hafa bátar úr Alftafirði, Hnífsdal, Bolungavík og 2—3 bátar afísafirði, selt afla í isfisktogara í júli. Fór hinn fyrsti héðan 10. júlí. Eru þegar farnir 4farm- ar, en ekki voru skipin alltaf fullfermd. Allmikið veiddist af smálúðu fyrir nokkru og er það að vísu hót, en einnig aflað- íst óvenjumikið af löngu, sem ekki selst í togarana. Hefur því orðið að salla hana, en er sennilega óseljanleg á þann hátt líka. Eru um 30 smál. komnar á land af löngu í fullverkaðri þyngd. Stöku hátar hittu af og til i nokkra ailahrotu laust fyrir mánaðamótin, en yfirleitt hef- ur verið sama allatregðan og á vorver- tíðinni, og einkum sártregur aíli nú síð- ustu dagana. Reknetaveiðar byrjuðu hér nokkru seinna en undanfarin ár, enda varð litt síldarvart framundir mánaðamót. En dagana fyrir og eftir mánaðamótin hafa reknetabátarnir aflað mjög vel, sumir frá 50—60 tunnur á dag. Sjö vélbátar héð- an og úr nærveiðistöðvunum eru sem

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.