Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1935, Page 15

Ægir - 01.08.1935, Page 15
Æ G I R 173 stendur á reknetaveiðum og selja, að vanda, veiði sína í frystihúsin héríbæn- um og nærveiðistöðvunum. Um aflabrögðin í fjórðungnum und- anfarna mánuði, hefi ég svo ekki ann- að að segja að þessu sinni. Isafirði, (i. ágúst 1935. Kristján Jónsson frá Garðsstöðuni. Skýrsla til Fiskifél. ísl. frá erindrekanum í Norðlendingafjórðung'i. Eins og Fiskifélagið hefur séð af hálfs mánaðarskýrslum mínum, hefur fiskaíli brugðist að mestu leyti, sérstaklega er það vorhlaupið, sem oft hefur orðið hýsna þungt á metunum hjá útgerðar- mönnum, sem nú brást algerlega. í júni- mánuði var reitingsaíli á Siglufjarðar og Eyjafjarðarmiðum, en ekkert vesturund- an og mjög óverulegur á miðum Skjálf- andaflóa. Lengra austur aflaðist hreint ekkert fvr en síðustu daga júnímánaðar. Það sent af er júlí, hefur fiskileysið ver- ið álmennt, enda er nú sumstaðar löngu hætt að róa til fiskjar, t. d. á Siglufirði, nema þá smábátar til þess að lá »í soð- ið«. 011 stærri skipin eru fyrir löngu komin á síldveiði og velflestir dekkaðir bátar við Eyjafjörð sömuleiðis. Eru hér allmörg nótalög þannig, að 2 eða 3 hát- ar eru um eina herpinót og hefur það yfirleitt gengið allvel, það sem af er. Ein slík útgerð var ráðgerð á Sauðár- króld, ég var þar síðast á ferð i vor. Af Skagaströnd var ráðgert að 3 opn- ir vélhátar gengi til fiskjar, og af Káll's- hamarsvík 1, er venjulegur vertíðartími byrjaði, en ekkert hefur fengist þar enn. A Sauðárkróki eru til 8 opnir vélhátar og einn með dekki. Hann gengur á síld ásamt aðfengnum leigubát og var ekki talið líklegl að fleiri en 3—4 bátar gengi til þorskveiða, sízt að staðaldri, menn myndu snúa sér meira að atvinnu við síldarsöltun, sem ráðgert er að verði þar allmikil í sumar. Þar hefur lieldur ekki verið saltað neitttil útflutnings enn, að minnsta kosti liefi ég engar skýrslur fengið þaðan, enn sem komið er, sama er að segja um Höfðaströndina, en þar eru til 11 opuir vélhátar. í Haganesvík er engin útgerð, enda ekki til neins að róa þaðan af ýmsum ástæðum. Úr Sigufirði hafa gengið llest 8 stærri bátar, 3 undir 12 tonn og 6 trillubátar. Þar er aflinn talinn að vera 105380 kg miðað við verkaðan fisk, þann 30. júní síðastliðinn. Ur Ólafsfirði gengu í vor 2 bátar yfir 12 tonna, 10 undir 12 tonnum og 25 trillubátar, en eins og kunnugt er, fækk- aði þeim bátum stórlega í ofviðrinu á hvítasunnudagsmorgun síðastl., og dró þá svo að segja allan kjark úr mönn- um, sem vonlegt var, þar sem sumir misstu aleigu sína, margir urðu fyrir stórkostlegu beinu efnalegu tjóni og ilesl- ir föpnðu atvinnumöguleikum í bráðina, að minnsta kosli. — Afli er þar talinn að vera 30. júní 254300 kg verkaðs fiskjar. Af Dalvík og Upsaströnd liafa gengið llest 14 vélbátar þar af einnyfir 12 tonn og 10 trillubátar. Aflinn í júnílok 184460 kg. fiskjar. Úr Hrísey gengu til þorskveiða 15'vél- bátar og 7 trillur. Þar er allinn 147200 kg í júnílokin. Nú er þar með öllu hætt róðrum fyrst um sinn. Af Árskógsströndinni, J). e. frá Nausta- vik allt inn að Rauðuvík hafa gengið 2 dekkaðir bátar og 14 trilluhátar, þar er ailinn 107200 kg fiskjar, 30. júni.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.