Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1935, Blaðsíða 28

Ægir - 01.08.1935, Blaðsíða 28
ÆGIR Skuldaskilasj óður vélbátaeigenda. Þeir eigendur vélbáta, er sækja vilja um lán úr Skuldaskilasjóði vélbátaeigenda, skulu senda i)eiðnir um lán úr sjóðnum svo sem hér segir: Þeir, sem búa í Barðastrandarsýslum, Vestur-ísafjarðarsýslu, Norður-ísafjarðarsýslu, á ísafirði og í Strandasýslu, skulu senda beiðnir lil formanns nmboðsmanna á svæðinu, br. Kristjáns Jóns- sonar frá Garðsstöðnm, erindreka á ísafirði. Þeir, sem búa í Skagafjarðar-, Eyjafjarðar-, og Þingeyjarsýslum, á Siglufirði og Akureyri, skulu senda beiðnir til formanns um- boðsmanna á svæðinu, hr. Steingríms Jónssonar, fyrv. bæjarfógeta á Akureyri. Þeir, sem búa í Norður-Múla-, Suður-Múla-, og Austur-Skafta- fellssýslum, á Seyðisfirði og i Neskaupstað, skulu senda beiðnir sínar til formanns umboðsmanna á svæðinu, hr. Jónasar Guð- mundssonar alþm. í Neskaupstað. í Vestmannaeyjum skulu beiðnir sendar til hr. Viggó Björnssonar útibússtjóra. Annarsstaðar af landinu (úr Húnavatnssýslum, Dalasýslu, Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, Gull- bringu- og Kjósarsýslu, Reykjavík, Hafnarfirði, Árnessýslu, Rang- árvallasýslu, og Vestur- Skaftafellssýslu) skulu beiðnir sendar til sjóðstjórnarinnar í Reykjavík. Lán úr Skuldaskilasjóði verða ekki veitt öðrum en þeim, sem eiga vélbáta, er ekki eru stærri en 60 smálestir. Eyðublöð undir umsóknir um lán úr Skuldaskilasjóði vélbáta- eigenda fást hjá umboðsmönnum og skrifstofu sjóðsins í Reykjavík. Reykjavík, 15. ágúst 1935. Stjórn Skuldaskilasjóðs vélbátaeigenda Jón Baldvinsson Georg' Ólafsson Ing’var Pálmason

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.