Ægir - 01.11.1935, Síða 5
Æ G I R
Svohljóðandi tillaga samþ. í einu hlj.:
»Fjórðungsþingið undirstrikar nauðsyn
þess, að landhelgisgæzlu verði auk þess
sem verið hefir, ávalt haldið uppi fyrir
Vestfjörðuni frá 1. sept. til loka janúar-
mánaðar ár livert, og ef að vélhátar ann-
ast gæzluna, þurfi þeir að vera tveir.
Annar fyrir svæðið frá Patreksfirði lil
Önundarfjarðar og hinn fyrir svæðið frá
Önundarfirði lil Aðalvíkur«.
Ut af mikilli ágengni togara á veiði-
mið hér mn þessar mundir, var atvinnu-
málaráðuneytinu senl svohlj. hréf frá
fjórðungsþinginu :
Atvinnumálaráðuneytið, Reykjavík.
Síðan varðbáturinn hætti gæzlu, heíir
ágengni togara í landhelgi, um alla Vesl-
firði vaxið svo, að óverjandi er við að
húa. Mal'a togarar sést inni á öllum fjörð-
um við veiðar og sumir hafa togað í
landhelgi framhjá veiðibátum um daga,
en breitt yfir nafn og núpier. Afli var
hér nokkur fyrir fáum dögum, en hefir
nú þorrið, og telja sjómenn það ágengni
togara að kenna. í þessu sambandi bend-
ir fjórðungsþingið ráðuneytinu á þá stað-
reynd, er vélbáturinn Víkingur R. E. 4,
kærði enskan togara (i. V. 2(i5, fvrir
landhelgisbrot 4. þ. m., en varð að sleppa
öðrum togara, er breitt hafði yfir nafn
og númer og sem notaði heitt vatn og
bareíli til varnar þvi, að Vikingur gæti
svift skýlunni af einkennishókstöfum tog-
arans.
Fjórðungsþingið skorar því fastlega á
ráðuneytið, að hregðast tafarlausl við,
um fullkomna landhelgisgæzlu frá þess-
um tíma til næstk. áramóta, annaðtveggja
með hraðskreiðúm vélbát eða stærra
gæzluskipk.
Vitamál. (Framsm. Sigurður Fr. Ein-
arsson).
Svohlj. tillögur samþ. í einu hljóði:
231
Fjórðungsþingið heldur fast við kröf-
ur þær um endurhælur og aukningu vita
á Vestfjörðum, sem það hefir áður gerl,
og bendir sérstaklega á :
a. Að fyrirhugaður viti við Álftamýri
verði settur á Langanestá í Arnar-
íirði, og liafi liann nægilegt ljósmagn
lil að lýsa út í fjarðarmynnið.
1). Að vitinn á Sléltanesi sé stórum
aukinn að ljósmagni, þar eð hann
er að dómi fjölda sjófarenda talinn
alls ófullnægjandi;
e. Að væntanlegur viti á Óshólum verði
hyggður á næstkomandi sumri;
d. Fyrirhugaður viti á Flateyrarodda
verði leifturviti;
e. Að Galtarvitinn verði gerður að mið-
unarvita (Radiovita).
Telur þingið brýna nauðsvn hera til
þess, að meira fé sé varið lil vitamála,
en að undanförnu, og ekki megi hjá
líða, að aila ljár til endufbóta, og l)ygg-
ingu nýrra vila, og álítur að vinna heri
að ljársöfnun og útvegun lánsfjár, utan-
lands og innan i þessu skyni.
Shjsavamamál. (Framsm. Arngr. Fr.
Bjarnason).
Svohlj. tillaga samþ. í einu hljóði:
Jafnframt 'og [fjórðungsþingið þakkar
ötullega starfsemi margra slysavarna-
sveita hér vestanlands, telur fjórðungs-
þingið nauðsynlegt, að unnið sé að fram-
kvæmdum þessara mála af sem mestum
áliuga og kappi. Álílur fjórðungsþingið
það mikinn ávinning til meiri fram-
kvæmda og fastara starfs, að kosin værí
3ja manna vfirstjórn þessara mála íliverj-
um fjórðungi og ályktar að kjósa 3ja
manna nefnd lil undirhúnings sameigin-
le<mm fundi slysavarnasveitanna.
í nefndina kosnir :
Arngr. Fr. Bjarnason með 7 atkv.
Eirikur Einarsson . með 5 atkv.
Kristján Jónsson . með 5 atkv.