Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1935, Side 6

Ægir - 01.11.1935, Side 6
232 Æ G I R Varamaður í nefndina kosinn : Ólafur Guðmundsson framkv.stj. Talstöðvar í fiskiskipum. Svohljóðandi tillaga frá lyrri nefnd samþykkt i einu hljóði: Fjórðungsþingið telur talstöðvar í fiski- skipum mikið öryggi fyrir sjóslysum og að þær þurfi að ná almennri útbreiðslu en vera með meira langdragi en nú er. Til þess að svo verði, þarl' leiga fyrir talstöðvar að verða um 60 kr. á ári og lampar, batterí og geymir að fylgja tal- stöðvunum, án sérstaks gjalds. A því er og sérstök nauðsyn, að kunnáttumenn um aðgerðir talstöðva, séu fyrir hendi, á þeim útgerðarstöðvum, þar sem tal- slöðvar eru útbreiddar, l. d. hér á Isa- firði. G r e i n a r g e r ð : Eitt hið bezta öryggi gegn sjóslysum er almenn útbreiðsla talstöðva í veiði- ílotanum. Margir eða llestir hinnastærri vélbáta og öll stærri veiðiskip hafa nú talstöðvar. Eru flestar þeirra leigðar af Landssímanum og er ársleigan 120 kr. Auk þessarar ársleigu er nú fyrrí venju ])rugðið og Landssíminn lætur hvorki lylgja talstöðvunum lampa eða hattei'í, eins og fyrst var gert. Verð á lömpum og batteríum fyrir hverja stöð, nemur um 130 kr. Við þelta bætist og sú krafa Lands- símans, að leigjandi verður að tryggja stöðina fyrir 1400 kr. og greiða það ið- gjald, þótt stöðvarnar kosti ekki yfir 600 kr. Auk þessara útgjalda er uppsetningar kostnaður um 40 50 kr. fyrir hverja stöð. Pá veldur það miklum eríiðleikum og kostnaði fyrir útgerðina við talstöðvarn- ar, að þegar þær bila fæst hvergi gerl við þær, nema í Reykjavík. Verður oft kostnaðarfrekt að scnda þær suður og viðgerðarkostnaður oft tilíinnanlegur. Einkum fyrir smærri velbáta, eru þessi útgjöld meiri en svo, að þeir geli bætt þeim ofan á önnur, sem óhjákvæmilega livíla á þeim. Hinsvegar eru talstöðvar jafn nauðsynlegar smærri veiðiflotanum sem þeim stærri. En til þess að svo geti orðið, þarf allur kostnaður við talstöðv- arnar að lækka. Sýnist og Landssíminn mætti vel við una, þótl leigan og annar koslnaður lækkaði mikið. Sala sjávarafniða, (Svohlj. lillögur frá 2. nefnd samþ. með öllum gr. atkv. Fjórðungsþingið ályktar að Rsa yfir: 1. Að það telur nauðsynlegt og sjálf- sagt, að afla nýrra markaða, og við- hafa sem mesta fjölbreytni um hag- nýting allra sjávarafurða, svo sem með hraðfrysting fiskjar, herzlu fiskj- ar, ýmiskonar iðnaðar í sambandi við fiskveiðarnar og fullkomnari lýs- isvinnslu en nú er. 2. Að það telur sjálfsagl og skilt, að Alþingi og rikisstj.órn birti nú þegar skýrslu um hvernig verðjöfnunar- gjaldinu af saltfiski fyrir árið 1934 hefir verið varið, og', að eftirstöðv- arnar af gjaldi þessu verði tafarláust greiddar fiskeigendum. 3. Þar sem talið er, að mjög háll verð- jöfnunargjald sé tekið af saltfisks- framleiðslu yfirstandandi árs, telur fjórðungsþingið það afaróheppilegt, að þrýsta verðinu þannig niður, í jafn erfiðu árferði. 4. Að útflutningsgjald það, sem síðasta Alþingi lagði á skreið (fiskbein) sé of hátt, og geti valdið of mikilli verð- lækkun á skreið i framtíðinni. Innlend mótorverksmiðja. (Frsm. Arn- grímur Fr. Bjarnason). Svohlj. tillaga samþ. í einu hljóði: »Fjórðungsþingið heinir þvi lil ríkis- stjórnarinnar og Alþingis, að fram verði látin fara rannsókn og athugun um stofn-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.