Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.1935, Side 3

Ægir - 01.12.1935, Side 3
Æ G I R MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS 28. árg’. Reykjavík — des. 1935 Nr. 12. Kassasöltun á flski. í daglegu tali er þessi söltun venjulega nefnd pækilsöltun. En ég hef skrifað þrjár greinar um kassasöltun áður, og held því nafninu. Þessar greinar er í 3. og 7. tbl. Ægis 1929 og í Morgunblaðinu 7. marz þ. á. Ég hef verið spurður all- mikið um þessar greinar og orðið þess var að þær eru ekki í höndum ýmsra manna, sem nú vilja hafa þeirra not. Nú hefur atvinnumálaráðuneytið látið sérprenta leiðbeiningar um þessa söltun, og geta þeir sem þess óska fengið þær hjá mér eða yfirfiskimatsmönnunum og hjá sölusambandi ísl. fiskframleiðenda. í fyrstu grein minni um þetta (3. tbl. Ægis 1929) lýsti ég rækilega tilraun, sem ég gerði með þessa verkun og niðurstöð- ur af hénni. Sýndi hún að hagur er að því að salta þannig. Fiskurinn verður hreinni, hvitari, þykkari og þyngri og svo er af þessu nokkur saltsparnaður. Fyrir framleiðendur verður útkoman af verkuninni þannig betri. Ohætt er að segja, að yfirleitt likar þessi fiskur vel í neyzlulöndunum. í Barcelona er hann vel þekktur og lief- ur gott orð á sér. Sama er að segja um Kaupmanahöfn. Og allur smáfiskur (eink- um Labri) ætti að vera saltaður á þenna hátt. Bæði á Spáni og Ítalíu vilja menn þykkan, hvítan fisk, og fremur lítið þurk- aðan. En allan fisk, sem á að verða létt- verkaður, ætti að kassasalta. Af óverk- uðum fiski, sem kom bæði til Spánar og Italíu i vor um þær mundir sem ég var þar, líkaði pækilsaltaður fiskur bezt. í sumar var sent sýnishorn af salfiski til Bandaríkjanna, en líkaði ekki. Þótti dökk- ur og' þunnur. Sennilegt þykir mér, að þykkur, hvítur pækilsaltaður fiskur liefði líkað betur. Yegna hinnar miklu þurkunar, sem Portúgalar og Suðurameríkumennheimta, þá er vafasamt, hvort þessi söltun er heppileg fyrir þessa markaði, enn sem komið er. Fyrir þvi er ekki fengin full reynzla. Það er þó ekki af því, að Port- úgalar vilji ekki gjarnan þykkan og hvít- an fisk, heldur af hinu, að það er mun erfiðara fyrir framleiðendur hér, að harð- þurka þennan fisk, heldur en þursaltað- an. Þá mun aukinn þungi og saltsparn- aður við pækilsöltun vega vel á móti þurkunarmismun. Ég hef líka trú á því, að Portúgalar komist eins og aðrir að þeirri niðurstöðu að minna þurkaður fiskur sé ljúffengari, þegar þeir hafa komið sér upp kælilnisum, en þau eru nú að eins tvö þar og eingöngu gerð fyrir innlenda framleiðslu. Á eitt atriði vil ég og benda enn, í sambandi við harðþurkun á pækilsölt- uðum fiski. Þeir sem hafa harðþurkað fisk, hafa vafalaust veitt því eftirtekt, að þegar hann er orðinn mikið þurkaður, einkum þykkur fiskur, fer hann að gulna í síðustu breiðslunum. Þetta kemurnaum-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.