Ægir - 01.12.1935, Síða 12
262
Æ G I R
A sunnudagsmorgun fannst rekinn á
land trillubátur frá Garðsvík á Svalbarðs-
strönd. Örendur maður fannst í bátnum
var það Steingrimur Hallgrímsson á
Látrum.
Kom það síðar i ljós, að á laugar-
dagsmorgun höfðu þeir Steingrímur og
Hallur sonur hans, bóndi á Látrum, far-
ið á bátnum inn að Grímsnesi. Á heim-
leiðinni skall ofviðrið á þá.
Hallgrimur var maður á fertugsaldri,
kvæntur og álti tvær dætur. Steingrímur
var aldraður maður i dvöl hjá syni
sínum.
Skömmu áður en óveðrið skall á, fóru
Svalbarðsstrendingar heimleiðis í l>íl frá
Akureyri. I bílnum voru Eiður Árnason
frá Svalbarðseyri, Þorsteinn Björnsson frá
Fagrabæ og Áki Kristjánsson bílstjóri frá
Akureyri.
Við Ytri-Várðgjá varð bíllinn að snúa
við, en Þorsteinn og Eiður héldu áfram
út ströndina. — Ivl. 1 um nóttina kom
Þorsteinn heim að Grundvið Svalbarðs-
eyri. Eiður hafði gefist upp skammt það-
an og var látinn, þegar Þorsteinn skildi
við liann. Var lík hans þegar sótt.
Björn Þórðarson í Grænumýrartungu,
varð hráðkvaddur hjá fjárhúsum við
hæinn, er hann hafði allan daginn verið
að bjarga fé. Hann var bróðir Gunnars
bónda í Grænumýrartungu.
f Hrisey brotnuðu tvær bryggjur og
tvö sjólnis. Einnig urðu þar aðrar minni
skemmdir. Á Árskógsströnd tók út tvo
árabáta og einn vélbát.
Ofviðrið skall mjög skyndilega á áísa-
firði. Tveir smábátar brotnuðu þar. Skjól-
veggur brimbrjótsins í Bolungavík brotn-
aði aftur. Grjót barst upp i lendinguna
og gerði hana ónothæfa.
Auk þessa nrðu 4—5 brunar um nótl-
ina og' misstu sumir aleigu sína.
F j órðung'sþing’
fiskifél.deilda í Austfirðingafjórðung’i.
1. 1' u n d u r.
Arið 1935, miðvikudaginn 20. nóvember var
fjórðungsþing fiskifélagsdeilda i Austfirðinga-
fjórðungi sett í fundarsal bæjarstjórnar Seyðis-
fjarðarkaupstaðar. Þingið setti forseti sambands
fisldfélagsdeildanna í Austfirðingafjórðungi Niels
Ingvarsson, Norðfirði. Bauð hann fulltrúa vel-
komna og fór nokkrum orðum um starfsemi
sambands fiskifélagsdeildanna og óskaði bless-
unar af starfsemi þess í framtíðinni.
Að lokinni fundarsetningu var kosin nefnd
til að atliuga kjörbréf fulltrúa þeirra, sem mætt-
ir voru á þinginu. Kosningu htutu í nefndina,
Arni Vilhjálmsson, Friðrik Steinsson og Antó-
níus Samúelsson.
Nefndin athugaði kjörbréf mættra fulltrúa
og lagði fram eftirfarandi tillögu:
»Eftir að liafa athugað kjörbréf fulltrúa og
kvittanir fyrir skatti deildanna til Fiskifélags
íslands, telur nefndin að allir fulltrúar séu lög-
lega kosnir«.
Tillagan var samþykkt með samhlj. atkv.
Þessir fulltrúar eru mættir á þinginu:
I'vrir Hornafj.deild: Brynjólfur Sigurðsson.
» I'áskrúðsfj.deild: Antóníus Samúelsson.
» Eskifj.deild: Friðrik Steinsson.
» Neptúnus Norðfirði: Níels Ingvarsson.
» Ægir Lórarinsstaðaeyrum: Árni Vilhj.son.
» Seyðisfj.deild: F’órhallur Vilhjálmsson.
Fleiri fulltrúar eru ekki mættir, er fundur
var settur.
Bá var gengið til kosninga í stjórn fjórðungs-
sambandsins. Gildir kosningin til tveggja ára
eða til næsta fjórðungsþings. Kosningu hlutu:
I'orseti Árni Vilhjálmssou, með 3 atkv. Vara-
forseti Niels Ingvarsson, með 5 atkv. Bitari Frið-
rik Steinsson með 4 atkv. Vararitari Pórhallur
Vilhjálmsson með 3 atkv.
Hinn nýkjörni forseti tók þá við fundarstjórn
og' þakkaði traust það, er þingið hefur sýnt
honum með kosningu þessari.
Pá var gengið til kosninga í dagskrárnefnd.
Iíosningu blutu: Árni Vilhjálmsson, Friðrik
Steínsson og Niels Ingvarsson.
Pá var kosið í fastar nefndir þannig:
1. nefnd: I'riðrik Steinsson, Brynjólfur Sig-
urðsson, Pórliallur Vilhjálmsson.