Ægir - 01.12.1935, Side 13
Æ G I R
263
2. nefnd: Níels Ingvarssou, Árni Vilhjálms-
son, Antónius Samúelsson.
Kosið var í fjárhagsnefnd þannig: Brynjólf-
ur Sigursson, Þórhallur Vilhjálmsson, Antóníus
Samúelsson.
Dagskrárnefnd lagði fram svohljóðandi til-
lögu til dagskrár þingsins:
1. Lagðir fram reikningar fyrir árið 1933 og
1934.
2. Beitumál Austfirðinga. 3. Vátryggilg vél-
báta. 4. Ilagnýting sjávarafurða. 5. Dragnóta-
veiði. 6. Herpinótaveiði í netlögum. 7. Útflutn-
ingsgjald erlendra skiþa, sem rétt liafa til veiða
i landhelgi. 8. Samgöngumál. 9. Landhelgisgæzla.
10. Breyting á lögum Fiskifélags Islands. 11.
Vitamál. 12. Rekstursfyrirkomulag útgerðarinn-
ar. 13. Onnur mál.
Þingið samþj'kkti þessa dagskrártillögu og
gildir liún því sem dagskrá þingsins.
Samkvæmt tillögu dagskrárnefndar, var mál-
um visað til nefnda þannig:
Til 1. nefndar: 1. Beitumál Austfirðinga. 2.
Vátrygging vélbáta. 3. Herpinótaveiði í netlög-
um. 4. Útflutningsgjald erlendra skiþa. 5. Vita-
mál.
Til 2. nefndar: Hagnýting sjávarafurða. 2.
Dragnótaveiði. 3. Samgöngumál. 4. Landhelgis-
gæzla. 5. Breyting á lögum Fiskifélags íslands.
6. Fyrirkomulag útgerðarinnar.
Var þessi skipting samþykkt.
1. máli dagskrárinnar, reikningum sambands-
ins fyrir árin 1933 og 1934 var visað til fjár-
hagsnefndar.
Samþykkt var að taka í áður samþykkta dag-
skrá: 14. Verðjöfnunargjald af saltfiski, og var
málinu visað til 1. nefndar.
Fundargerð uþplesin og samþ.
Næsti fundur ákveðinn í sama stað kl. 5 í
dag. Fundi slitið.
2. fundur.
Fundurinn var settur kl. 5 siðd., þann 20.
nóvember. Fundurinn var haldinn á sama stað.
Allir sömu fundarmenn voru mættir.
f*á var gengið til dagskrár. Tekið var fyrir :
í. Reikningar sambandsins fyi'ir árin 1933 og ’34.
Fjárhagsnefnd hafði endurskoðað reikninga
sambandsins fyrir árin 1933 og 1934. Friðrik
Steinsson las upp reikninga og gerði grein fyr-
ir hinum einstöku liðum þeirra. Nefndin lagði
fram eftirfarandi tillögu til fundarályktunar:
«Við undirritaðir viðurkennum hér með, að
liafa endurskoðað reikninga Fjórðungssambands
fiskideilda Austfirðingafjórðungs fyrir árin 1933
og 1934, án þess að nokkur ástæða finnist til
athugasemda. Leggjum við þvi til, að þeirverði
samþykktir eins og þeir liggja fyrir».
Tillagan var samþykkt í einu hljóði.
2. Hagnýting sjávarafnrða. Framsögum. nefndar
þeirrar, sem mál þetta hafði til meðferðar var
Arni Vilhjálmsson. Talaði hann um málið frá
ýmsum hliðum og' lagði fram, fyrir hönd nefnd-
arinnar, eftirfarandi tillögu:
«Fjórðungsþingið beinir því til Fiskiþings, að
það fái aðstoð ríkisvaldsins með fjárframlagi
til þess að fiskiðnfræðingur félagsins geti gert
rannsóknir og hyrjunartilraunir með iðnað úr
fiski og fiskúrgangi. Telur fjórðungsþingið, að
svo mörg verkefni séu óleyst í sambandi við
fiskiðnað, að árlega verði að ryðja braut nýj-
um iðngreinum.
Pær iðngreinir, er fjórðungsþingið vill sér-
staklega benda á, að teknar séu til rannsóknar
og tilrauna eru: 1. Niðursuða á fiski til útflutn-
ings. 2. Frekari vinnsla úr síldar- og þorskalýsi
en nú er. 3. Útflutningur á beinlausum fiski og
iðnaður i sambandi við það. 4. Límvinnsla úr
sundmaga, roðum og fiskúrgangi. 5. Að komið
verði upp reykhúsum. 6, Vinnsla úr hrognum
og sviljum. 7. Um hagnýting krabba og skel-
fisks til útflutnings.
Ennfremur vill fjórðungsþingið vekja athygli
Fiskifélagsins á að láta rannsaka, hvaða tegund-
ir þara nnini líklegastar til joðvinnslu og birta
niðurstöðu sína um það í blaðinu Ægir».
Tillaga nefndarinnar var samþ. í einu hlj.
3. Samgöngumál. Frams.m. nefndarinnar í máli
þessu, var Niels Ingvarsson. Talaði hann um
samgöngubætur fyrir Austurlandi almennt og
lagði fram eftirfarandi tillögur frá nefndinni:
1. »Fjórðungsþingið lítur svo á, að samgöng-
um við Austurland sé mjög ábótavant og skor-
ar því á Fiskiþingið að beita sér fyrir eftirfar-
andi samgöngubótum á sjó :
a. Að ferðir skipa Eimskipafélags íslands til
útlanda, með viðkomu í Englandi verði
auknar, svo að ferðir falli, að minnsta kosti
hálfs mánaðarlega til og frá útlöndum um
Austfirði.
I). Að annað strandferðaskip rikisins verði í
lorum austur um land, frá Reykjavík til
Akureyrar og sömu leið til baka, tvisvar i
mánuði á timabilínu frá apríl til nóvbr.loka.