Ægir - 01.12.1935, Síða 16
266
Æ G I R
hún hækkar í verði, sakir litillar veiði, og
verði því fé, sem þannig fæst, varið lil
lækkunar á beitusíld.
c. Að athugað sé, hvort ekki sé hentugt, að
ríkið reki íshús i sambandi við síldar-
verksmiðjurnar.
d. Að tryggt verði, að hæfileg ishús séu til
geymslu fyrir sild i sem flestum veiði-
stöðvum.
e. Að hámarksverð verði sett á beitusild og
flutningsgjald á frosinni síld til staða, er
'erfiðast eiga um þessa aðdrætti, verði end-
urgreitt að miklu eða öllu leyli.
II. Fjórðungsþingið skorar á ríkisstjórnina að
styðja útveg á Austurlandi á komandi ver-
tíð, með því að sjá um, að beitusíld verði
flutt lil Austfjarða og Hornafjarðar, án
þess að kauþendur þurfi að greiða flutn-
ingsgjald. Ennfremur að rikissjóður leggi
fram fé til að lækka verðið á aðkevþtri
beitu, að miklum mun.
Tillögur nefndarinnar voru samþ. í einu lilj.
13. Dragnótciveiði i landhelgi. Frsm. nefndar-
innar Niels Ingvarsson, iagði fram eftirfar-
andi tillögu frá þeim Niels Ing'varssyni og Pór-
halli Vilhjálmssyni:
»Fjórðungsþingið telur, að lög um dragnóta-
veiði í landhelgi þurfi breytingar við, og' leg'g-
ur til, að við endurskoðun þeirra, verði lögð
áhersla á, að g'era á þeim eftirfarandi breytingar:
a. Heimild einstakra sveitarfélaga til að friða
viss svæði fyrir dragnótaveiði, verði úr gildi
numin.
1). Að timabilið, sem nú er leyft að stunda
dragnótaveiði í landhelgi, verði lengt þann-
ig, að veiði megi byrja 20. ágúst í stað 1.
seþtember.
c. Að aðeins þeir bátar eða skiþ, er skrásett
eru á svæðinu frá Langanesi að Hornafirði.
að honum meðtöldum, megi stunda drag-
nótaveiðar.
Tillagan var samþ. með 3 : 2 atkvæðum.
Í4. Önnur mál. 1. Niels Ingvarsson flutti eftir-
farandi tillögu:
»Fjórðungsþingið skorar á Alþingi, að nema
úr gildi hækkun þá, á útflutningsgjaldi af þurk-
uðum fiskbeinum, er sett var á siðasta Alþingi«.
Tillagan var samþ. i einu hljóði.
2. Brynjólfur Sigurðsson flutti eftirfarandi til-
lögu :
»Fjórðungsþingið endurtekur þá kröfu sína,
frá fyrri fjórðungsþingum, að nú þegar verði
lögð símalina um Ilorn í Hornafirði að Firðt
i Lóni«. Tillagan var samþ. í ei2u lilj.
3. Sami maður flutti ennfremur þessa tillögu:
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélag íslands,
að heita sér fyrir þvi, að reist verði sem allra
fyrst talstöð i samhandi við simastöðina á Iiöfn
i Hornafirði«. Tillagan var samþ. í einu hlj.
4. Ut af framkominni ósk, um að rannsakað
verði, hvort eigi sé unnt að gej’ma loðnu til
beitu, var samþykkt að vísa þessu til fiskiþings-
fulltrúanna til frekari aðgerða.
5. í sambandi við 3. lið í þessari fundargerð,
var kosið í nefnd þá, sem þar ræðir um. Kosn-
ingu hlutu: Sigurður Vilhjálmsson, Hánefsstöð-
um, Tlieodór Blöndal, Seyðisfirði og Jónas
Jónsson, Seyðisfirði. Sem varamaður i nefndina
var kosinn Benedikt Jónasson Seyðisfirði.
(5. Svohljóðandi ályktun var samþ. i einu hlj.
»Fjórðungsþing'ið sér ekki ástæðu til að gera
fjárh gsáætlun að þessu sinni, þar sem uþþlýst
er, að starfsfé fjórðungsins fyrir árin 1935 og
1936 verður ekki greitt. Hins vegar telur fjórð-
ungsþingið það mjög misráðið, að svifta fjórð-
unginn þessu starfsfé«.
7. »Par sem fjórðungarnir liafa verið sviftir
starfsfé, skorar fjórðungsþingið á Fiskifélag ís-
lands, að láta ekki niðurfalla reglubundnar
djúþhitamælingar við Austurland, er hr. Árni
Vilhjálmsson hefur framkvæmt að undanförnú
fyrir fjórðungssambandið«.
Tillagan var samþ. i einu hlj.
8. F'jórðungsþingið felur ritara sinum að hafa
fjárgeymslu fjórðungssambandsinstil næstaþings.
9. Fjórðungsstjórninni er falið að ákveða stað
og tima fyrir næsta fjórðungsþing.
Fundarbók uþþlesin og samþykkt.
Fleira lá ekki fyrir þinginu og var því fjórð-
ungsþinginu slitið.
Friðrik Steinsson, Árni Vilhjálmsson,
Níels Ingvarsson, Pórh. Vilhjáhnsson,
Brynjólfur Sigurðsson, Antóníus Samúelsson.
Bílstj óra verkfall
liófst hér í Reykjavík og nágrenni, laug-
ardag 21. des. á hádegi; var þá 511 um-
ferð híla stöðvuð.