Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1935, Blaðsíða 20

Ægir - 01.12.1935, Blaðsíða 20
270 Æ G I R þá tryggðir fyrir öllum slcaða á sjó og landi (eldi og foki), sem samkv. virðingu þar til kjörinna manna nemur minnst 200 krónum. 3. Að hver bátur, sem hefur löggilt legufœri, skoðist tryggður hvar sem lionum er lagtá legu, enda þótt hann liggi mannlaus. Skoð- un legufæra fari fram árlega af þai- til kvöddum mönnum. og telst enginn bátur löglega tryggður, sem ekki fullnægir kröf- um skoðunarmanua um þyngd, lengd og gildleika legufæra og annars útbúnaðar. Samábyrgðin sjálf útnefnir skoðunarmenn og annast innheimtu iðgjalda í verstöðum. 4. Að bátar, sem standa uppi 4 mánuði sam- fleytt, fái endurgreitt 10°/o af iðgjaldinu, en standi þeir uppi 0 mánuði eða lengur end- urgreiðast 20°/o. 5. Akvæði i nefndum lögum, sem lcoma í bága við framangreindar breytingar, falli niður. Tillögur þessar voru samþ. í einu Jilj. 4. Sala á nýjum fiski, lil útfhitnings fiskiðnaðar. Nefndin í þessu máli lagði fram 2 tillögur, sem báðar voru samþykktar i einu lilj., og hljóða þannig: 1. »Fjórðungsþing Norðlendingafjórðungs á- kveður að kjósa 3ja manna milliþinganefnd til þess að vera á varðbergi með að útvega togara til ísfiskkaupa handa veiðistöðvun- um innan Fjórðungssambandsins, þegar tímabært er. Fulltrúunum er falið að skvra það fyrir mönnum heima fyrir, liver í sinni deild, að þessi nefnd muni hafa allar fram- kvæmdir á hendi um þetta mál, og ber þvi einstaklingum að senda nefnd þessari til- lögur eða ályktanir sínar, ef þeir liafa eitt - hvað fram að færa máli þessu lil stuðn- ings«. 2. Fjórðungsþing Norðlendingafjórðungs skor- ar á Fiskifélag Islands að beita sér fyrir þvi, að bannaður verði með öllu innflutn- íngur á alls konar sild, svo sem smásíld, gaffalbitar o. s. frv. og öðrum síldar- og fisktegundum. Sömuleiðis að Fiskifélagið beiti ser fyrir þvi, að stutt verði eftir mætti að allskonar síldarvinnslu og fiskvinnslu i landinu sjálfu«. 5. Slysatryggingar. Nefndin í þessu máli bar upp þessa tillögu: »Fjórðungsþingið lýsir ánægju sinni yfirþeim réttarbótum, sem felast i frumvarpi því, um slysatryggingar, er nú liggur fyrir Alþingi, við- víkjandi dagpeningum til slasaðra eða sjúkra sjómanna, en telur hinsvegar óréttlátt að eigi skyldi sinnt þeim kröfum síðasta Fiskiþings, að sömu reglur væru látnar gilda um skvldur út- gerðarmanna og iðnrekenda, gagnvart þeim, er þeir hafa í þjónustu sinni, og skorar því á Al- þingi að leiðrétta það misrétti». Tillagan var'samþ. í einu hljóði. 6. Oliuinnkaup. Nefndin sem kosin hafði verið lagði fram svo hljóðandi tillögur: 1. »Ejórðungsþing Norðlendingafjórðungs á- kveður að kjósa milliþinganefnd i oliumál- ið, og greiðist kostnaður við störf liennar, svo sem símakostnaður, ritföng og porto, úr sjóði fjórðungssambandsins. 2. Fjórðungsþing Norðlendingafjórðungs skor- ar á allar fiskifélagsdeildir og alla útgerð- arrnenn á Norðurlandi að binda sig ekki við olíuviðskipti fyrst um sinn, en standa fast saman um það, að fá olíuverðið lækk- að úr því sem nú er. Fjórðungsþingið lítur jafnframt svo á, að bezt væri að útgerðarmenn gæfu nefndinni yfirlýsingu um það, að þeir gætu og skvldu kaupa olíu hjá því firma, sem milliþinga- nefnd fjórðungsins gæti fengið til þess að útvega oliuna ódýrari en nú er, eða í 13 aura kílógrammið og þar undir«. Báðar þessar tillögur voru samþykktar i einu liljóði, og ennfremur þessi viðaukatillaga frá forseta: »Fjórðungsþing Norðlendinga, skorar á ríkis- stjórnina að beita áhrifum sínum og valdi til þess, að hráolíuverð í landinu lækki að mun, lielzt niður í 12 aura kílóið, svo að verðið verði nokkurn veginn sambærilegt við verð í ná- grannalöndunum«. F*á voru kosnir í þessa olíunefnd: Guðm. Pétursson með 7 atkv. Hreinn Pálsson — (i — og Stefán Jónasson — 4 — Ennfremur voru kosnir í milliþinganefnd til að annast sölu á nýjum fiski, þessir menn: Hreinn Pálsson með 7 atkv. Porvaldur Friðfinnsson með 6 atkv. Sígurður Jónsson með 4 atkv. 15. Útflutningsgjald af sjávarafurðum. Nefndin sem kosin var í þetta mál, lagði fram svo orðað nefndarálit: »Par sem reynzla undanfarinna ára sýnir, að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.