Ægir - 01.12.1935, Page 21
Æ G I R
271
þorsk og sildarútgerð landsmanna hefur j'fir-
leitt verið rekin með tapi, og söluörðugleikar
miklir, sérstaklega á fiski, virðist ósanngjarnt
að iþyngja þessum atvinnurekstri með tilfinn-
anlega háum útflutningsgjöldum, og með tilliti
til þess að útflutningsgjöld af landbúnaðaraf-
urðum hafa verið afnumin, mœlir öll sanngirni
með, að þessum gjöldum verði einnig létt af
sjávarútveginum.
Fyrir þvi skorar fjórðungsþing Norðlendinga
á þing og stjórn að afnema nú þegar útflutn-
ingsgjöld af sjávarafurðum«.
Tillagan samþ. í einu hljóði.
12. Fjárstyrkur til fjórðunganna. Svohljóðandi
tillagn var samþ. í einu hlj.:
»Fjórðungsþing Norðlendingafjórðungs skor-
ar á þing og stjórn að veita svo ríflegan fjár-
styrk til Fiskifélags íslands. aðfélagið geti fram-
vegis veitt hverjum landsfjórðungi jafnháan
styrk og það liefur veitt undanfarin ár«.
9. Sjóvinnunámsskeið. Nefndin lagði fram þann-
ig hljóðandi tillögu :
»Fjórðungsþing Norðlendingafjórðungs, inn-
an Fiskifélags Islands, skorar á bæjarstjórn
Akureyrar að veila allt að 300 kr. styrk nú á
þessum vetri til sjóvinnunámsskeiðs þess, er
halda á liér i bænum í.vetur að tillilutun Fjórð-
ungsþingsins«.
Fessi tillaga var samþ. í einu hljóði.
Pegar hér var komið. voru reikningar Fjórð-
ungsins fj’rir árin 1933—1934 lesnir Uþþ. Þeir
höfðu verið endurskoðaðir, og voru nú sam-
þykktir í einu hljóði.
Þá var lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta
fjárliagstimabil, og leit liún þannig úl:
Fjárhagsáœtlun fgrir árið 1935.
T e k j u r:
Sparisjóðsinnstæða............... kr. 1718.55
G j ö 1 d:
1. Styrkur til sjóvinnunámsskeiðs kr. 300.00
2. Kostnaður við Fjórðungþing . . — 200.00
3. Kostnaður við olíunefnd...... — 300.00
4. Starfræksla, símakostnaður, rit-
föng o. fl................. — 100.00
5. Óviss útgjöld............... — 150.00
6. Jöfnuður.................... — 668.55
Kr. 1718.55
Fjárhagsáœtlun fgrir árið 1936.
T e k j u r :
1. Væntanlegur slyrkur ............. kr. 1000.00
2. Sparisjóðsinnstæða ............... — 668.55
Kr. 1668.55
G j ö 1 d :
1. Kostnaður við fulltrúafund . . . kr. 500,00
2. Kostn. við sjóvinnunámsskeið . — 300.00
3. Starfrækslan.................. — 100.00
4. Óviss útgjöld og eftirstöðvar. . — 768.55
Kr. 1668.55
Fjárliagsáætlanir þessar voru báðar samþ.
Framlagt erindi frá Fskifélagsdeild Dalvíkur,
þar sem farið er fram á að þingið mæli með
málaleitun deildarinnar um fjárstyrk frá Fiski-
félaginu til dráttarbrautar á Dalvík.
Samþykkt með öllum greiddum atkv. að mæla
með erindi þessu.
Fá var samþ. að heimila stjórn Fjórðungs-
þingsins að styrkja þá fulltrúa, sem erfiðast
eiga með þingsókn, að einhverju leyti.
19. Nœsli pingstaður var ákveðinn Akureyri.
20. Stjórnarkosning.
Forseti: Guðm. Pétursson með 8 atkv.
Varaforseti Jón Kristjánsson með 5 atkv.
Ritari: Hreinn Pálsson með 5 atkv.
Vararitari: Stefán Jónasson með 5 atkv.
Gjaldkeri: Jóhannes Jónasson með 8 atkv.
Varagjaldkeri: Helgi Pálsson með 7 atkv.
E.ndurskoðendur: Páll Einarsson og
Ari Hallgrímsson.
Forseti vakti máls á þvi við fulltrúana, að
þeir heima fyrir, hver í sinni deild, hvettu
menn til að kaupa tímaritið »Ægir«, þvi þar er
að fá allar þær skýrslur og fréttir, sem sjávar-
útveginn varða.
Fleiri mál lágu ekki fyrir þinginu.
Forseti þakkaði þingmönnum góða framkomu
og dugnað við þingstörfin, og sleit því næst
þessu Fjórðungsþingi.
Guðnmndur Pétursson.
Karl Nikulásson.