Ægir - 01.07.1936, Page 8
150
Æ G I R
einnig hafa Færeyingar sent þangað skip
og hafa þau aílað vel.
Þetta er hið helzta, sem sagt verður
um Bjarnarey í íljótu hragði, getur skeð
að nú varði okkur ekkert um hana, en
hver veit nema, að íslenzk skip þurfi
einhverntíma að sækja þangað fisk, eða
fari tilraunaferðir til eyjarinnar, hregð-
ist aíli hér, en því fylgir, að menn verða
að hafa hugmynd um staðinn, sem leit-
að er til. Eyjan hefur verið einkaeign
síðan 1918; er það hlutafélag í Stavang-
er í Noregi, sem á hana nú.
Læknisskoðun á íiskimönnum
í vor sem leið, þegar verið var að lög-
skrá fiskimenn í Noregi á íslandsveiðar,
var mikið um það ritað í »Haugasunds
Avis«, hvort nauðsynlegt væri, að lög-
skráð væri á fiskiskip, og um þelta urðu
stælur í blöðunum.
Þeim lauk, þegar stjórnarvöldin gáfu
þá skýringu, að engin nauðsgn bœri lil
að lögskrá fiskimenn á norsk veiðiskip,
sem legðu upp afla sinn á norskri höfn.
Fyrir þeim, sem vildu láta lögskrá á
skipin, vakti það, að um leið og lögskráð
væri, færi fram læknaskoðun á skips-
höfninni, og fiskimennirnir sjálfir telja
læknaskoðunina nauðsynlega. Þeir vita
mörg dæmi til þess, að þrengsli i háseta-
klefum fjölda skipa, eru heilsuspillandi,
aðeins bjóðandi hraustum. heilbrigðum
mönnum.
Fiskimaður hefur t. d. sagt »Hauge-
sunds Avis«, að þrír bræður, sem heima
eiga skammt frá Ilaugesund, hafl fengið
tæringu, meðan þeir voru að veiðum.
Allir smituðust þeir á sama skipi, hvert
árið eftir annað (voru aðeins einn í einu
á skipinu). Þelta þótti ískyggilegt og
rannsókn fór fram. Við hana uppgötvað-
ist, að háseti, sem um nokkur ár hafði
verið á skipinu, var berklaveikur en
virtist heilhrigður og gekk til allrar vinnu.
Alit lækna var, að hann hefði smitað
hina þrjá hræður. Þetta er eitt dæmi, en
finna má mörg.
Almenningsálit er, að læknaskoðun á
fiskimönnum sé hráðnauðsynleg, áður
en þeir fara á veiðar, hvort iieldar haldið
er í langferðir, t. d. til fiskveiða við ís-
land eða til veiða heima fvrir, og myndi
aðeins leiða gott af sér, ef útgerðarmenn
gælu komið því til vegar, að læknaskoð-
un á skipshöfnum færi fram, áður en
skip fara á veiðar, hverjar sem þær eru.
(Fiskaren 14. árg. 28. tbl.)
Hið meira mótorgæzlupróf.
Dagana 20.—28. maí var lialdið próf
í mótorfræði samkvæmt lögum nr. 23,
9. jan. 1935.
Var liið verklega próf haldið í Lands-
smiðjunni og vélasal Fiskifélagsins, en
hið munnlega í húsi Fiskifélagsins.
Undir prófið gengu 12 menn og stóð-
ust það 10, þeir voru:
Hinrik Kr. Steinsson, Akranesi.
Sigurður K. Þorvaldsson, Akranesi.
Arinhjörn Clausen, Isafirði.
Guðjón Sveinbjörnsson, Rvík.
Arthur Aanes, Vestmannaeyjum.
Þoríinnur Hansson, Akranesi.
Sigurður Pétursson, íafirði.
Ingvar Guðjónsson, ísafirði.
Valtýr B. Benediksson, Akranesi.
Bjarni Kr. Bjarnason, ísafirði.
Þetta próf er hið síðasta, er lialdið
verður samkv. þessum lögum, þar eð
þau eru úr gildi numin, með lögum
þeim, sem gengu í gildi 1. júlí j). á.
Prófið veitir áðurtöldum mönnum, rétt
til að fara með, allt að 400 ha. vélar.