Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.1937, Qupperneq 7

Ægir - 01.06.1937, Qupperneq 7
Æ G I R 125 arnir voru athugaðir, kom það iljólt í ljós, að lóðabátarnir höfðu sldlað mestum arði, en aftur á móti urðu þeir bátar verst úti, er stunduðu netaveíðar og þeim mun stærri sem bátarnir voru, því verri var afkoman. Á þeim netabátum, sem voru yfir 45 fet, gekk hver háseli frá borði, að lokinni vertíð, með 114 krónu skuld að meðaltali. Þeir 50 netabátar, er sendu fullnægj- andi rekstrarreikning, eru aðeins 3°/o af þeim bátum, er netaveiðar stunduðu. Fjárbagsafkoma þessara 50 báta, er sendu flskimálastjórninni fullkomnar skýrslur, er vitanlega ekki hægt að leggja til grundvallar fyrir afkomu netaveiðiflotans i heild sinni, en hún gefur eigi að síður }Tmsar sennilegar bendingar um rekstur hans á vertíðinni 1936. Þeir vélbátar er voru yfii' 45 fet á stærð ölluðu að mcðal- tali fyrir 4150 kr. og varð brúttó hlutur skipverja 246 kr.,en að frádregnum öllum kostnaði 114 kr. skuld. Meðal aíli þeirra báta er voru 36—45 fet á stærð, var 3751 kr. brúttó. Brúttó tekjur hvers hásela urðu 361 kr., eu hlutur að frá- dregnum kostnaði varð 57 kr. Samkvæmt skýrslum þeim, er bárust frá netabátunum mega ekld vera færri en 70—80 net á bát, og er það talið mjög mátulegt. Margir bátar liafa 90 net og þar yfir, en þeir bafa ekki aíl- að meira en þeir, sem liafa milli 70 og 80 net. Fullnægjandi skýrslur bárust frá 49 bátum, er stunduðu lóðaveiðar og sýndu þær að afkoman var dálítið misjöfn eftir þvi hvort notaðir voru vélbátar eða ára- bátar. Hluturinn á vélbátunum var að meðaltali, að frádregnum kostnaði, 100 kr., en 82 ltr. á árabátunum. Beitukostu- aður yfir vertíðina var að jafnaði 192 kr. á mann. Haldfæraveiðar eru bæði stundaðar á vélbátum og árabátum. Samkvæmt skýrsl- um þeirra 37 báta, er fiskimálastjórnin fékk, var nettó hlutur hvers skipverja á vélbátunum 65 kr., en á árabátunum gengu hásetarnir frá með 10 kr. skuld eftir vertíðina. Ef bver skipsverji á þessum 136 bátum, er sendu skýrslur, hefði átt að bera úr býtum 20 kr. á viku yfir þann tíma er veiðarnar voru stundaðar, þá hefði orðið að fást fyrir netaíiskinn að meðaltali 23.8 aura pr. kg. (miðað við blautan fisk), lóðafiskinn 16.6 aura og haldfærafiskinn 23.2 aura pr. kg. En verð á blautum fiski var aftur á móti aðeins 11.5 aura eða 16 aura pr. kg., ef hrogn og lifur er reiknað með. Frá sjónarmiði fiskimannanna er slík fiskveiði, sem hér hefir verið lýst, mjög óarðvænleg, þar sem hún ekki getur veitt þeim, er að fiskframleiðslunni vinna nægi- leg laun, til þess að framfleyta þeim sjálfum og fjölskyldum þeirra. En þó leitl sé frá að segja, þá hafa, nokkrar undanfarnar vertíðir, fjölmargir fiski- menn orðið að hverfa heim aftur frá Lofóten með tómar pyngjur, eftir nokkra vikna erfiði. í vetur var ágætur aili í Lofóten, og er seinasta verlíð talin vera sú bezta, er þar befir komið um nokkra ára skeið. Þáttakan í Lofólcnveiðunum var ekki eins mikil i vetur og bún bafði verið undanfarandi ár. Munu margir fiskimenn bafa verið orðnir vonlitlir um, að í Lo- fóten væri hægt að aíla sæmilegra tekna, eftir að hafa komið þaðan heim vor eftir vor slippir og snauðir að lokinni vertíð, og því beldur kosið að sitja beima, eða balda til annara verstöðva. í vetur stunduðu alls 17256 manns veiðar á 4830 bátum, en árið áður voru í Loíöten um 5400 bátar. Netaveiðar

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.