Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.1937, Side 9

Ægir - 01.06.1937, Side 9
Æ G I R 127 eða stokka upp lóðastúf. Það vildi tilað þetta skeði rétt fyrir lokin og því urðu afleiðingar verkfallsins ekki eins afdrifa- ríkar og ef það hefði skollið á, þegar vertíðin stóð sem hæsl. Verkfallið var ekki háð vegna launadeilu, heldurí þeim tilgangi að fá alla verkamenn, er vinna að fiskverkun, til þess að ganga í verk- lýðsfélög, er sén í norska alþýðusam- handinu. Þar sem svo margir bátar stunda veið- ar eins og i Lofoten, hljóta hlutir há- seta að vera æði misjafnir og svo varð einnig á síðustu vertíð. Hæstur hlutur var rúmar 1000 kr. að frádregnum kosln- aði, en almennast munu hlutir háseta hafa verið frá 300—600 kr. Nokkrir flski- menn hurfu heim aftur án þess að bera nokkuð úr býtum eftir vertíðina, ogvoru það einkum þeir, er stunduðu haldfæra- veiðar á smá árabátum. Stirðlynd veðr- átta hamlaði því að þessir bátar gætu sótt sjó, þegar vélbátarnir moköfluðu. Rikissjóður varð að sjá 60 manns fyr- ir fari heim lil sín, og er það miklu lægri tala en verið hefir undanfarnar vertíðir. Herpinætur. Mestur hluti þeirrar sildar, er fiskast hér við land, veiðist i herpinót. Veiðar- færi þetta er fundið upp í Ameriku og fyrsl notað þar. Amerikumenn kalla herpinótina »seinnet«,enNorðmenn nefna hana »snurpenot« og hefir það nafn flulzt hingað til lands og nota fiskimennirnir það jafnan. Arið 1887 byrjuðu Sviar að nota ame- ríkönsku herpinótina við sildveiðar. Um 1890 byrja Norðmenn að nota þelta veið- arfæri og höfðu þeir lært af Svíum. Bæði Norðmenn og Sviar umbættu herpinót- ina mjög mikið eftir því sem reynslan kenndi þeim, en þær umbætur gengu í alll aðra ált en í Ameríku. Hans Falk, konsúll i Stavangri, byrj- aði að stunda sildveiðar hér við land um síðustu aldamót. Árið 1903 sendi Falk einn af skipstjórum sínum til Ame- ríku, til þess að kynna sér herpinóta- veiði. Árið eftir lét hann tvö skipin sín »Alhatros« og »Atlas« veiða sild i herpi- nót fyrir Norðurlandi og er það i fyrsla skipti, sem það veiðarfæri var notað hér við land. Fyrstur allra íslendinga, sem rak síld- veiðar með herpinót, var Ágúst Flygen- ring kaupmaður i Hafnarfirði, og byrj- aði hann árið 1905. En 20 árum áður en herpinótaveiði byrjaði hér við land, liafði Árni Thor- steinson landfógeti skrifað merkilega rit- gerð um síld og sildveiðar, og sagði hann þar frá herpinótinni og hvernig Ame- ríkumenn notnðu hana. Þar sem herpinótin á stórvirkastan þáttinn í síldveiðunum islenzku, má ætla að menn langi nokkuð að fræðast um uppruna hennar og viðgang og hverjar umbætur hafi orðið í sambandi við hana. Herpinótin var fyrst fundin upp árið 1826 í rikinu Rhode Island, en það cr við austurströnd Ameríku. í sinni upp- runalegu gerð var hún aðcins lítið eilt frál)rugðin því veiðarfæri, er notað var þar í landi lil makrilveiða. Fiskimenn- irnir komu fljótt auga á gagnsemi þessa nýja veiðarfæris og vegna þess stórjókst makrílveiðin á skömmum tima. Áður langt liði var svo byrjað að veiða í herpi- nótina ýmsar lleiri fisktegundir. Árið 1886 var byrjað að veiða lax i herpinót við Kyrrahafsströnd Ameriku. Áður fyrr hafði lax aðallega verið veidd- ur i net og landnætur og voru árabátar notaðir við veiðarnar. Við herpinótaveið-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.