Ægir - 01.07.1941, Qupperneq 8
vitað, þegar þetta er skrifað, að skipinu
var sökkt með tundurskeyti frá kafbáti,
tveim dögum eftir, að það lagði úr liöfn
liéðan, eða 29. júni. Mjög mikil spreng-
ing varð í skipinu, og eyðilagði hún
meðal annars annan björgunarbátinn,
en eftir tvær og hálfa mínútu frá því
sprengingin varð, var skipið sokkið.
Allar nánari fréttir af þessu slysi munu
ekki berast liingað, fyrr en þeir, sem
björguðust, eru heim komnir.
Mennirnir, sem fórust, voru þessir:
Einar Kristjánsson, skipstjóri, Reyni-
mel 44, f. 23. des. 1895. Kvæntur og átli
1 harn.
Kristján Bjarnason, 1. stýrimaður,
Hrefnugötu 3, f. 3. jan. 1902. Kvæntur,
Jón H. Kristjánsson, 2. stýrimaður,
Framnesvegi 56, f. 13. sept. 1911.
Ókvæntur.
Jón Erlendsson, 2. vélstjóri, Karlagötu
21, f. 25. apríl 1908. Kvæntur og átti 1
barn.
Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson, aðstoðar-
vélstjóri, Brekkustíg 6 A, f. 19. janúar
1917. Ókvæntur.
Sveinbjörn Ársælsson, loftskeytamað-
ur, Laugavegi 137, f. 5. okt. 1915.
Ókvæntur.
Karl Þ. Guðmundsson, kyndari, Eski-
í'irði, f. 24. janúar 1922.
Matthías Rögnvaldsson, kyndari, Hjalt-
eyri, f. 1. september. 1915.
Sverrir Símonarson, lempari, Hölts-
g'ötu 12, f. 27. september 1921.
Hafliði Ólafsson, luiseti, Freyjugötu
35, f. 5. maí 1894. Kvæntur og átti 1 barn.
Bjarni Þorvarðsson, báseti, Vesturgötu
38, f. 1. júlí 1916. Kvæntur og átti 1 barn.
Haraldur Sveinsson, háseti, Ránargötu
6, f. 30. okt. 1907. Ivvæntur.
Sigurður Eiríksson Þórarinsson, háseti,
Mánagötu 21, f. 7. nóv. 1915. Kvæntur,
barnlaus.
Viggó Þorgilsson, háseti, Hringbraut
132, f. 2. marz 1919. Ókvæntur.
Þessir menn komust af:
Sigmundur Guðbjartsson, 1. vélstjóri,
Túngötu 43, f. 10. ágúst 1908. Ókvæntur.
Ingibergur Lövdal, loftskeytamaður
Hringbraut 78, f. 8. sept. 1921. Ókvæntur.
Sigmundur Pálmason, matsveinn,
Þverboll 5, f. 3. maí 1900. Kvæntur og
átli 4 börn.
Sigurður Ólafsson, aðstoðarmatsveinn,
Baldursgötu 28, f. 5. marz 1920.
Ókvæntur.
Kristján B. Kristófersson, kyndari,
Vífilsgötu 19, f. 9. jan. 1913. Kvæntur og
á 1 barn.
Vladmir Knopf-Miler, báseti, Berg-
staðastræti 17. Fæddur í Kiev í Ukraine
15. apríl 1916. Ökvæntur.
Flutningaskipíð „Hekla“ var eign b.f.
„Kveldúlfs“ og var 1215 rúml. að stærð.
Guðmundur Jónsson
á Eyrarbakka.
Seint á síðastl. vori, eða 29. maí, and-
aðist á heimili sínu á Eyrarbakka Guð-
mundur Jónsson fyrrv. oddviti. — Guð-
mundur var einn af hinum dugmiklu
Hraunssystkinum í Ölfusi, og fæddur
var bann að Hrauni 9. sept. 1869.
Þess sáust skjótt merki, er Guðmund-
ur komst á legg, að liann mundi verða
aðfaramaður til allra verka, enda kom
það sér vel, þvi að ungur missti hann
l'öður sinn og stóð móðir lians því ein
uppi með stóran barnahóp. Ungur að ár-
um réðist Guðm. ásamt tveim bræðrum
sínum, Magnúsi og Þorláki, í útgerð í
Þorlákshöfn.Þau mörgu ár, sem Ilrauns-
hræður voru samtímis formenn í „Höfn-
inni“, voru þeir taldir meðal fremstu og
dugmestu aflamanna austan fjalls.