Ægir - 01.07.1941, Síða 9
Æ G I R
179
Giiðmundiir Jónsson.
Árið 1904 fluttist Guðm. til Eyrarbakka
og' dvaldi þar, sem eftir var ævinnar. —
Áður en hann kom á Bakkann, liafði
hann við ýms störf fengizt auk sjó-
mennskunnar, er sum háru þess vott, að
Jiann vildi þreifa fyrir sér út fyrir þann
hrin g, er markað hafði tækni og verk-
menningu íslendinga fram til þess tíma.
Eftir að hann kom á Eyrarbakka fékkst
hann aðallega við verzlunar- og skrif-
stofustörf, en auk þess hlóðust á Iiann
margvísleg opinher störf. Hann var odd-
viti Eyrarhakkalirepps, sýslunefndar-
maður, gjaldkeri sjúkrasamlags, safn-
aðarfulltrúi o. m. fl„ sem hér yrði of
langt upp að tína. En þó liann hefði í
mörg horn að líta, gegndi hann öllum
sínum störfum með frábærri skyldu-
rækni og samvizkusemi. Hann vildi í
cngu vamm sitt vita, hvorki í smáu né
stóru, og var boðinn og húinn að leysa
hvers manns vandræði, ef hann fékk því
við komið. — Um langt skeið var liann
styrkasta stoð hindindisstarfseminnar á
Eyrarhakka og lagði á sig i hennar
þágu mjög niikið og óeigingjarnt
starf.
Guðmuudur kvæntist árið 1901 Jóninu
Árnadótluf frá Stokkseyri. Þau hjuggu
myndarbúi í 14 ár, eða þar til hún lézl
4. iúní 1945.
Með Guðmundi hafa Eyrbekkingar
misst þann manninn, er undanfarna ára-
tugi hefur sinnt sveitar- og félagsmálum
þeirra meira og hetur en nokkur annar.
Kristmann Tómasson
fiskimatsmaður á Akranesi.
Þann 20. júlí síðastl. andaðist á heimili
sínu á Akranesi Kristmann Tómasson
fiskimatsmaður.
Kristmann var fæddur að Bjargi á
Akranesi 15. des. 1867 og var því 73%
árs, er liann lézt. Foreldrar hans voru
lijónin á Bjargi, Tómas Erlendsson og
Kristrún Hallgrímsd. Kristmann ólst upp
á Akranesi og dvaldi þar alla sína ævi,
að einu ári undanteknu, er hann var hú-
settur í Revkjavík. Hann kunni því
manna hezt að greina frá hinni atvinnu-
legu þróun í fæðingarstað sínuin og
hvernig Iiann hafði vaxið frá því að vera
mjög fámennt „pláss“ í eitt af hlómleg-
ustu og fjölmennustu veiðistöðvum
landsins. Alla þá nýsköpun hafði Ivrist-
mann séð með sínum eigin augum og
sjálfur átt í lienni nokkurn þátt, bæði
heinan og óheinan. — Þann 16. mai 1891
gekk Ivristmann að eiga Helgu Níelsdólt-
ur frá Lambhúsum, þau hjónin áttu þvi
Kristmann Tónuisson.