Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1954, Síða 11

Ægir - 01.04.1954, Síða 11
Æ G I R 73 Alit Gunnars Rollefsens fiskifræðings: Er aá hefjast aldarfjóráungs aflatregáutímabil í Lófót? í vetur hefur farið á sörau leið í Lófót og i fyrra, að vertíðin hefur brugðizt. Þar sem mikill fjöldi manna á afkomu sína undir góðum aflabrögðum þar, er ekki að undra, þótt Norðmönnum verði tíðrætt um orsakirnar fyrir aflaleysinu. Enda er það svo, að mikið liefur verið ritað um það í blöð- in, fyrirspurnir bornar fram í Stórþinginu og erindi flutt í útvarpi. Norskir sjómenn hafa lengst af, svo sem margir stéttarbræður þeirra í öðrum lönd- um, haft ótrú á ýmsum nýjungum og oft viljað kenna þeim um, þegar afli hefur brugðizt. Línan og þorskanetið átti eitt sinn að vera orsök þess, að afli brást, síðar niótorvélin og dýptarmælirinn og nú síðast þorsknótin. Gunnar Rollefsen, einn af fiskifræðing- unum við norsku hafrannsóknarstofnunina, hefur sagt, að hægt væri að leggja bann við notkun mótorvélar og dýptarmælis, en hvort afli ykist við það, væri mjög vafasamt. En Rollefsen hefur sagt fleira, og skal það nú rakið og þess jafnframt getið, að hann er talinn fremsti sérfræðingur meðal Norð- nranna í þorskrannsóknum. Norðmenn standa svo vel að vígi, að þeir hafa i höndum skýrslur um Lófótaflann í heila öld. Talið er sennilegt, að ekki séu til jafn nákvæmar upplýsingar yfir jafnlangt tímabil og veiðarnar í Lófót. Samhliða þessu hafa Norðmenn fengizt við fiskrannsóknir i hálfa öld. Rollefsen telur, að það séu ekki niargar fisktegundir, sem þeir vita jafnmikið Um og þorskinn. Og fullvist má telja, að siðari rannsóknir á öðrum fisktegundum hyggjast á þorskrannsóknuin. Þegar um það er rætt, að þorskaflinn hafi ..brugðist" bæði í ár og í fyrra, þar sem Gunnar Rollefsen. hann hafi ekki orðið nema 50 þús. smál.,1) er vert að hafa það í huga, að meðalaflinn á því tímabili, sem til eru áreiðanlegar skýrslur um, er ekki nema 70—80 þús. smál. Og ekki er lengra undan en svo, að eldri kynslóðin man 25 ár, þá er meðaflinn í Ló- fót var ekki nema 35—40 þús. smál. Þá var þorskanótin ekki komin til sögunnar, botn- vörpuveiðarnar ekki heldur, en hins vegar bæði mótorvélin og þilbáturinn og fyrir þeirra atbeina hefði mátt vænta meiri afla. Orsökin til tregrar veiði var einfaldlega sú, að i fyrsta lagi var stofninn lítill allt þetta langa tímabil og í öðru lagi hefur gotfisk- urinn sennilega leitað á aðrar stöðvar við ströndina á þessum árum. Sé horft lengra aftur í tímann og litið á þorskaflann á árunum 1870—1895, kemur í ljós, að mikill afli er í Lófóten allt þetta tímabil. Þá var aflinn tvöfalt meixú en næstu 25 árin á eftir, eða tímabilið, sem fyrr var minnst á. Þá var ekki sótt nema á opnum báturn og veiðarfærin ekki sambærileg við það, sem nú er. Síðasta mikla aflaárið á þessu tímabili, varð aflinn í Lófót um 100 þús. smál. En næstu fimm árin á eftir ein- ungis 25—30 'þús. smál. á ári. Alag fiskimannanna á stofninn er tví- mælalaust ekki orsök þess, að aflinn minnk- ar skyndilega svona mikið. Botnvörpuveiði þekktist þá ekki við Noreg, og fyrir Finn- merkurströnd veiddu þá ekki aðrir en Norðmenn. 1) Lófótaflinn í ár varð ekki nema 42 ])ús. smál., eða 8 kús. smál. minni en í fyrra.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.