Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1954, Síða 13

Ægir - 01.04.1954, Síða 13
Æ G I R 75 við staðreynd, er ógerningur að sjá afleið- ingar goítruflana 1950—51 fyrr en eftir þrjú til fjögur ár hér eftir, því að þá fyrst er fiskur, sem fæddur er á þessum árum, kom- inn á hrygningaraldur. Síðan ræðir RoIIefsen um svifið í sjónum og hve mismikið það getur verið og um áhrif þess á þroskaskilyrði þorsksins. Þá vikur hann að þvi, hve þátttakan i Lófótveiðun- um fari eftir aflabrögðum og notkun veið- arfæra eftir gerð fisksins. En um þorsk- nótina segir hann m. a. þetta: Þegar byrjað var að nota þorsknótina i Lófót, voru skilyrði til að fiska í nót mjög æskileg. Fiskurinn stóð þá mjög grunnt, og það fengust því mjög stór köst. Það er gleðiefni, að menn fengu að reyna not nótarinnar við hagstæð skilyrði, en þess var lika þörf, að komast að raun um, hvernig hún dygði, þegar svipað hefur staðið á og tvö síðastl. ár. Veiðin með þorsknót í Lófót er liður í því starfi að gera afkomu fiski- mannanna betri. En eins og jafnan, þegar um tilraunir er að ræða, mega menn vera við því búnir, að ekki gangi allt að óskum. Reynslan sýnir, að það er takmarkað, sem hægt er að veiða við Lófót. Það er stað- reynd, að jafnan hafa of margir menn sinnt veiðum á þessum slóðum, því að miklu niinni mannfjöldi hefði getað aflað sama fiskmagn. Þannig horfir þetta við, þegar framleiðslumöguleikar eru eingöngu hafðir í huga. En vitanlega má ekki ganga fram hjá því, að Lófótveiðarnar eru ekki þýð- ingarlausar fyrir þann, sem rær einskipa og dorgar með sínu færi. En þegar rökræða á verkefnin i sambandi við fiskveiðarnar yfirleitt, þá verður að halda sér við þau grundvallaratriði, sem rnáli skipta. Það er sjálfsagt, að menn geri sér það Ijóst, að hið mikla aflatimabil í Lófót getur verið liðið hjá og framundan sé nýtt 25 ára timabil. Um það þarf ekki að villast, að þorskstofninn hefur verið stór á norð- lægum fiskislóðum (við Noreg) síðasta aldarfjórðung. En það eru sýnileg merki bess, að hann sé alls staðar að minnka þar. ^orskir fiskimenn verða eklci einungis fyrir því, heldur einnig aðrar þjóðir i ríkum mæli. Þýzkar aflaskýrslur sýna, að heildarafli þýzkra togara á norðlægum fiskislóðum var 43% minni 1953 en 1952. Og afli þýzkra togara fyrir strönd Finnmerkur var í minnsta lagi 1953. Að lokum drepur Gunnar Rollefsen á það, að nauðsynlegt sé að auka möskvastærðina í botnvörpu úr 110 mm í 150 mm. Með til- raunum i þá átt megi fá fast undir fætur fyrir væntanlegar umræður fyrir þær þjóð- ir, sem hafa áhuga fyrir því að koma i veg fyrir of mikið álag á fiskstofninn og þar með tryggja sér eins mikinn feng og kostur er á. Hann telur, að hættan af togveiðum úti fyrir Lófót sé hvergi nærri eins mikil og fvrir ströndum Finnmerkur og í Barentshafi. Hann tekur jafnframt fram, að hann vilji ekki fullyrða neitt um það, að veiði erlendra togara sé ástæðan fyrir minnkandi veiði við Lófót. En til þess að reyna að komast að raun um hina raunverulegu ástæðu verði hafnar skipulegar merkingar á ýsu og þorski við norsku ströndina og i austurhafi. Til þess að sinna þessu verki hefur verið ráð- inn hópur af ungum sérfræðingum, sem undanfarnar tvær vertíðir hafi fengið rann- sóknarskipið „G. O. Sars“ til afnota í þessu skyni nokkurn tíma. En meðan að nota þurfi „G. O. Sars“ bæði við síldar- og þorskrann- sóknir, sé ógerningur að fylgjast með ástand- inu eða þróuninni i Barentshafi og við norsku ströndina allt árið. Og þess er ekki að vænta, að árangurinn af þessum rann- sóknum verði til reiðu í náinni framtíð. Hámeraveiði frá Shetlandseyjum. „The Fishing News“ skýrir frá því 9. apríl siðasll.,'að norskir og danskir bátar hafi fengið góðan hámerarafla fyrir norð- urströnd Skotlands. Einn þessara báta hafði t. d. aflað fyrir 90 þús. ísl. kr. á viku. Þessi afli útlendinga á þessum slóðum varð til þess, að Shetlendingar hófu hámeraveiðar á þrem bátum. Er ætlun þeirra að leggja afla sinn á land i Aberdeen og annað veifið í Danmörku eða Hollandi.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.