Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1954, Qupperneq 14

Ægir - 01.04.1954, Qupperneq 14
76 Æ G I R Sigurjón Á. Ólafsson fyrrv. alþingismaður og formaður Sjómannafélags Reykjavíkur andaðist aðfaranótt fimmtudagsins 15. apríl síðastl. Hann skorti þá rösklega hálft ár í sjötugt. Sigurjón var Vestfirðingur að ætt og upp- runa og hclt jafnan nokkuð á loft, hvaðan liann var sprottinn. Gekk honum hvort- tveggja til í því efni, gaman og alvara. Blöð höfuðstaðarins liafa rakið ítarlega æviferil og störf Sigurjóns og væri að bera í bakka- fullan læk að endurlaka það hér. Ég hafði nokkur persónuleg kynni af Sigurjóni uin 15 ára skeið, og bregð ég því á það lag, að rifja upp sumt af þeim kynnum. Margt sagði Sigurjón mér af ýmsum Vest- firðingum, er hann hafði kynnzt, meðan hann var enn í heimahögum. Sjálfsagt hefur sumt af því verið minnisgreinir frá sam- vistum hans við Samúel Eggertsson á Stökk- um, bróðurson Matthíasar Jochumssonar, en lijá lionum ólst Sigui’jón upp að miklu leyti. Fyrsta langferð Sigurjóns að heiman var gerð í febrúarmánuði aldamótaárið. Hann réðst þá kokkur vestur á Bíldudal á eitt af skipum Péturs Thorsteinssonar. Hann var ákaflega heillaður af athafnalífinu á Bíldu- dal og þó sérstaklega af Pétri sjálfum. Hvorugt þetta þarf ncinn að undra, því að svo mun þessu hafa verið farið um flesta unglinga, er réðust til Bíldudals á þessum árum. Hitt furðaði mig nokkuð, að í augum Sigurjóns skyldi aldrei slá fölva á Bildu- dalsljómann. Eftir að Sigurjón hafði gerzt einn af forgöngumönnum socialdemokrata hér á landi, en heilindi hans i því starfi þurfti enginn að efa, hefði mátt ætla, að hann hefði litið athafnir Péturs á Bíldudal i öðru Ijósi en áður og jafnframt markað afstöðu sina til fyrri minninga í samræmi við það. En svo var því ekki farið. Mat lians á Pétri og athöfnum hans í Arnarfirði breytt- ist aldrei. Og um skeið sótti bókstaflega á hann að láta það í ljós opinberlega, sem hann og gerði í Sjómannadagsblaði 1950, og þá undir nafninu „Vestfirðingur“. Sigurjóni var aldrei fipgjarnt, þá er tryggð- in var annars vegar. Eitt sinn á styrjaldarárunum lá leið mín heim til Sigurjóns, en þá um kvöldið átti hann að mæta í hópi norskra sjómanna, sem hér voru staddir, og flytja ræðu sem formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. Hann hafði þá samið ræðu sína og látið þýða á norsku. Ég hlýddi á hana. Að lestri loknum duldist mér ekki, að hún var i raun og veru aðeins kveikja að því, sem Sigur- jóni bjó í brjósti. Honum hafði, sem altítt er, ekki tekizt að forma hugsun sina í orð, eldurinn lá eins og utan með, en ekki í efni ræðunnar. En nú hófst raust hans, og á tungu hans lágu orð með varmanum í sér, túlkunarskýr og felld að efni. Mér er um megn að tilfæra nokkuð úr þessari tölu, svo að svipur hennar haldist. Það var eitt- hvað, sem ég get heldur ekki gleymt, eitt-

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.