Ægir - 01.04.1954, Page 29
Æ G I R
91
sjóðsdeild bankans, er hér á landi engin
lánsstofnun, sem hefur það hlutverk með
höndum sérstaklega að lána fé til togara-
kaupa. Máske er ekki, eins og nú stendur,
mikil þörf fyrir Ián í þessu skyni. Það mun
ekki þykja nú sérstaklega fýsilegt að auka
togaraflotann. En ef ljreyting yrði á þessu
og nýtt líf færðist aftur í þá útgerð, mundi
mega telja eðlilega þróun þessara mála, að
starfsemi Fiskveiðasjóðs vrði aukin með það
fyrir augum.
En þetta liggur ekki fyrir nú, enda sjálf-
sagt nógan vanda við að stríða að afla Fisk-
veiðasjóði viðbótarfjár til viðhalds og end-
urnýjunar fiskibátaflotans. En hjá þvi
verður ekki komizt. Er það tilgangurinn með
flutningi þessarar þingsályktunartillögu, að
Alþingi og ríkisstjórn leggist á eitt um að
leysa þetta nauðsynjamál. Það mun vera
nauðsynlegt, samhliða þeirri ákvörðun, sem
tekin yrði með samþykkt þessarar tillögu,
að breyta samtímis lögunum um Fiskveiða-
sjóð á þann veg að hækka verulega þá
heimild til lántöku sjóðnum til handa, sem
þar er nú.
Vitabyggingar.
Á fundi sínum 10. marz s. 1. gekk vita-
nefnd frá tillögum um hyggingu vita á yfir-
standandi ári.
Á fjárlögum þessa árs er veitt kr. 1 millj.
lil byggingar vita og vitavarðabústaða og
verður að telja það algerlega ófullnægjandi
svo mikið sem enn er ógert á sviði vita-
bygginga og knýjandi nauðsyn er á að
framkvæmt verði.
Gert er ráð fyrir því, að einungis verði
unnt að byggja þrjá vita á þessu ári, þar af
2 ljósvita og einn radiovita.
Verða vitarnir þessir:
1. Lundey á Skjálfanda.
2. Eystra Horn.
3. Malarrifi, radioviti.
Þá verður enn fremur unnið að byggingu
vitavarðarbústaðar á Dalatanga.
Enn fremur óskaði nefndin eftir því að
reist verði siglingáljós, er leiði fyrir Iðu-
sker inn á Breiðdalsvik.