Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1954, Page 4

Ægir - 01.09.1954, Page 4
210 Æ G I R DAVÍÐ ÓLAFSSON, fiskimálastjóri: SÍLDVEIÐARNAR í SUMAR. Aflamagn og verðmæti. Fyrir meira en mánuði lauk síldarver- liðinni í sumar, sem í annálum síldveiða við ísland mun verða talin ein hin allra iélegasta fram til þessa. Nokkrar tölur geta gefið hugmynd um útkomuna á veiðunum. Heildaraflamagnið á herpinótaveiðunum mun hafa orðið sem næst 24.000 smál., og veit ég þá aðeins um eitt ár síðustu þrjá áratugina, sem veiðzt hefur minna magn, en það var árið 1952. Á þeirri vertíð var heildaraflinn aðeins rúmlega 9.000 smál. og verður þá að leita allt aftur til ársins 1921 til að finna eitthvað sambærilegt, og er þó raunar fráleitt að ætla sér að gera samanburð svo langt aftur í tímann, þegar tillit er tekið til þeirra stórkostlegu tækni- legu framfara, sem orðið hafa i sambandi við síldveiðarnar á þessu timabili. Á fyrra ári var heildaraflamagnið á herpinótaveið- unum nær 37.000 smál. eða rúmlega 50% meira, en það gerði þó ekki gæfumuninn lít af fyrir sig, heldur hitt hversu aflinn nýttist misjafnlega. Á fyrra ári fór meiri hluti aflans til söltunar og var þá saltað í nær 155 þús. tn. Bræðslusíldin var það ár 119 þús. mál. Á þessari vertíð var aðeins saltað í um 50 þús. tn., en bræðslusíldin var 124 þús. mál. Frysting af Norðurlands- síld til beitu var litið eitt meiri í ár en í fyrra, en það skiptir litlu, þar sem um lítið magn var að ræða. Hinn mikli mismunur á útkomu þessara tveggja vertíða verður Ijós, þegar það er athugað, að verðmæti þeirrar síldar, sem fer til söltunar, er því sem næst tveimur og hálfum sinnum meira en þeirrar, sem fer til bræðslu. Þannig var samanlagt verðmæti síldaraflans á fyrra ári yfir 30 milljónir kr., en á þessu ári að- eins tæplega 15 milljónir kr. Er munurinn á aflaverðmætinu þannig miklu meiri en á aflamagninu. Ástæðan fyrir þessu er sú, að veiðin hófst fyrr að þessu sinni, og áður en söltun gat hafizt, hafði verið veitt nokkurt magn, sem því nær allt fór til bræðslu. Hefði það að vísu ekki skipt öllu máli, þótt allt það magn hefði verið salt- að, en það hefði þó getað bætt afkomuna eitthvað. Hafrannsóknir og einkenni vertíðarinnar. Einkenni þessarar vertíðar var hið sama og því nær allra aflaleysisvertíða hingað til, að meginhluti Aæiðanna átti sér stað fyrri hluta vertiðarinnar, í júlímánuði. Að þessu sinni var þetta þó enn meira áber- andi en nokkru sinni fyrr, því að heita mátti, að veiðinni væri lokið eftir að júlí lauk. Það, sem mestu olli um þetta mikla aflaleysi á vertíðinni, var vafalaust veður- farið. Var það svo stirt að telja mátti með fádæmum á þessum tíma árs. Fyrsta hálfa mánuð vertíðarinnar mátti heita sæmilegt veður, enda gátu skipin þá oftast verið að við veiðarnar, en úr því spilltist svo mjög tiðarfarið, að vart mátti heita, að flotinn hefði nokkurn tíma farið til veiða sökum stöðugra storma, aðallega af norðri og norðaustri. Þegar svo loksins slotaði litið eitt, var síldin horfin af miðunum. Er það álit flestra beirra, sem ég hefi rætt við af þeim, sem voru við veiðarnar í sumar, að veðurfarið hafi ráðið langmestu um, hversu hörmulega tókst til með veiðarnar, þó eðli málsins samlcvæmt sé elcki unnt að færa sönnur á, að aflinn hefði orðið verulega meiri, ef tíðarfarið hefði verið betra en raun varð á. Undanfarin ár, allt frá árinu 1951, hefur tekizt náin samvinna milli fiskifræðinga frá íslandi, Noregi og Danmörku um rann- sóknir á skilyi'ðum í hafinu milli fslands, Noregs, Jan Mayen og Færeyja og á síldar- göngum á þessum slóðum, vikurnar áður en síldarvertíðin hefst við Norður- og Aust-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.