Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1954, Qupperneq 10

Ægir - 01.09.1954, Qupperneq 10
216 Æ G I R veiðitímann og að þeir gætu ekki haldið sjómönnunum á skipunum, nema unnt væri að tryggja þeim atvinnu meginhluta árs- ins. Þótti mér þessar upplýsingar hins norska útgerðarmanns all eftirtektarverðar, og veit ég, að svo mun vera um fleiri. Margþætt vandamál. Enda þótt ég hafi hér að framan leitazt við að svara þeirri spurningu, sem verið hefur á margra vörum undanfarin ár og sérstaklega eftir hverja aflaleysisvertið, hvort ekki væri rétt að hætta nú þessum síldveiðum og snúa sér að einhverju öðru, og svarað henni neitandi, þá var það engan vegin ætlun mín að draga fjöður yfir það alvarlega ástand, sem skapazt hefur vegna hins minnkandi afla. Ég vildi aðeins vekja athygli á því, hversu margþætt þetta vanda- mál er og að það er raunverulega engin lausn á því að svara spurningunni játandi. Það væri alltof einfalt. Rannsóknir síðari tíma hafa að vísu leitt ýmislegt í Ijós í sambandi við göngur sild- arinnar og ástand sjávarins, þótt ekki hafi þær getað bent okkur á leiðir út úr vand- anum enn sem komið er. Rannsóknunum hafa nú verið sköpuð enn betri skilvrði en áður hafa þekkzt hér á landi. Þannig opnast nýir möguleikar til að svara mörg- um þeim spurningum, sem enn er ósvarað í þessu efni. En vera má, að hin breyttu skilyrði við veiðarnar krefjist breyttrar veiðitækni, og ber þá að athuga það gaum- gæfilega og gera þær tilraunir, sem nauð- synlegar verða taldar til þess að veiða megi síldina, enda þótt hún hagi sér á nokkurn annan hátt en sú veiðitækni, sem nú er notuð, miðast við. En á meðan svo liorfir sem nú gerir um veiðarnar með þeim tækj- um, sem fyrir hendi eru, teldi ég mega sýna nokkra varkárni við sildarútgerðina, þannig að ekki væri eins miklu til hætt og verið hefur undanfarið. Er mér þó full Ijóst, að sá vegur er vandrataður, og visast i því efni til þess, sem ég sagði hér að framan. Tvær eða þrjár tölur geta e. t. v. skýrt hversu bilið er mjótt, sem þarf að brúa, til þess að veiðiflotinn og söltunarstöðvarnar a. m. k. slýppu skaðlaust. Á tíu ára bilinu 1935/1944 var meðalafli á hverja nót um hálft níunda þúsund mál. Náðist þessi mikli meðalafli þrátt fjrrir miklar löndun- artafir sum árin, vegna ónógs verksmiðju- kosts. Næsla áratug á eftir til ársins í ár lækkaði þetta meðalaflamagn á nót i tæp- lega 2 000 mál. Hugsuin okkur nú, að afl- inn hefði orðið 1 000 tn. meiri þessi ár að meðaltali og hefði allt verið saltað. Flest ár- in hefði það þýtt, að afkoma veiðiflotans og söltunarstöðvanna hefði verið tryggð. Er hér ekki um mikið magn að ræða miðað við fyrri reynslu. (Útvarpserindi flutt 21. sept. síðastl.) Erfiðleikar hjá spönskum sjávarútvegi. Spönsk blöð hafa upp á síðkastið rætt allmikið um kreppu hjá sjávarútvegi þar í landi. Fullyrt er, að spænski fiskiflotinn sé orðinn of gamall og of dýr í rekstri og þar af leiðandi verði ríkið í enn stærri mæli en fyrr að hjálpa við að endurnýja flotann. Útgerðarkostnaðurinn verður að lækka. Það hefur því verið lagt til, að ríkið greiði nokk- uð af olíukostnaði útgerðarinnar. Úr ýmsum áttum hefur verið lagt fast að spönskum stjórnarvöldum að vernda spanskan útveg fyrir erlendri samkeppni. Samtímis því sem aflabrögð Spánverja hafa verið fremur léleg, bæði á heimamiðum sem fjarlægum fiskislóðum, hefur fram- leiðslukostnaðurinn hækkað. Stjórnin hef- ur því ekki komizt hjá að lána útveginum 250 millj. peseta. Þegar hafa verið greiddir 150 millj. pesetar, en afgangurinn greiðist á næstu tveimur árum.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.