Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1954, Síða 11

Ægir - 01.09.1954, Síða 11
Æ G I R 217 Víðir II. GK 275. Hjá skipasimðastöðinni Dröfn í Hafnar- firði var hleypt af stokkum nýjum báti 18. júlí síðastl. Bátur þessi, sem er 56 rúml. að stærð, heitir Víðir II. og hefur einkennis- stafina GK 275. Eigandi lians er Guðmund- ur Jónsson, útgerðarmaður að Rafnkels- stöðum i Garði. Víðir II. er smíðaður úr eik, en yfirbygg- ing hans er úr stáli. Vélin er 180 ha. Lister- dieselvél. I bátnum er vökva þilfars- og' línuvinda og' dýptarmælir með asdic- útfærslu. — Reynsluför fór báturinn 23. júlí, og reyndist ganghraði hans þá 9 mílur. Teikningu af Víði II. gerði Egill Þorfinns- son, Keflavík. Yfirsmiður var Sigurjón Ein- arsson skipasmíðameistari í Hafnarfirði. Vélsmiðja Hafnarfjarðar annaðist niður- setningu á vél og alla járnsmíði. Rafvirkja- meistararnir Jón Guðmundsson og' Þorvald- ur Sigurðsson lögðu raflögn, en málun annaðist Sigurjón Vilhjálmsson málara- meistari. Sören Valentinusson gerði reiða og segl. Friðrik A. Jónsson útvarpsvirkja- meistari setti niður dýptarmæli. Vélsmiðj- an Héðinn smíðaði dekk- og línuvindu. — Á smíði skipsins var byrjað 5. október 1953. Jafnskjótt og báturinn var ferðbúinn fór hann norður til síldveiða. Skipstjóri á Víði II. er Eggert Gíslason í Garði. Þetta er sjöundi báturinn, sem smíðaður er i Skipa- smiðastöð Hafnarfjarðar. Víðir II. GK 275.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.